Atvinnusvæðið á Grundartanga
Nýleg mynd af Grundartangasvæðinu. (Mynd: Faxaflóahafnir)
Í byrjun árs 1973 hófst umræða um mögulega byggingu
járnblendiverksmiðju á Íslandi. Til greina komu svæði
eins og Straumsvík og Geldinganes en niðurstaðan varð
sú að verksmiðjunni var valinn staður á Grundartanga í
Hvalfirði. Við upphaf svo umfangs ikilla framkvæmda
m
er ýmislegt sem huga þarf að og allt tók þetta sinn tíma.
Íslenska járnblendifélagið var stofnað í apríl árið 1975 en
verksmiðjan sjálf tók til starfa í apríl 1979.
Þetta voru gríðarlega miklar breytingar fyrir atvinnulífið
í þessum landshluta og að mörgu leyti var unnið mikið
frumkvöðlastarf við að koma verksmiðjunni á fót. Jafn
framt var ráðist í miklar hafnarframkvæmdir á Grundar
tanga þegar bygging járnblendiverksmiðjunnar lá fyrir og
hefur sú höfn stækkað jafnt og þétt eftir því sem starfsemin
hefur aukist.
Lengi vel var járnblendiverksmiðjan, sem síðar varð í eigu
Elkem Ísland, eina stóriðjan á Grundartanga en 18 árum
eftir að hún var tekin í notkun var fyrsta skóflutungan
s
tekin að álverinu sem nú er Norðurál. Fyrsta kerið í ál
verinu var gangsett í júní 1998 og með tilkomu álversins
jókst starfsemin á Grundartanga til muna. Athafnasvæði
verksmiðjanna er stórt og með tímanum hafa sprottið þar
upp ýmis smærri fyrirtæki sem flest tengjast á einhvern
hátt starfsemi Elkem Ísland og Norðuráls. Undantekning
frá því er fyrirtækið Lífland ehf. sem sér um framleiðslu
og pökkun á fóðri. Af öðrum fyrirtækjum má nefna GMR
Endurvinnslu ehf. sem sér um að endurvinna stál og GTT
tækni ehf/Meitil ehf. sem sérhæfir sig í alhliða þjónustu
tengdri rafmagni og vélum.
Vélsmiðjurnar Hamar hf. og Héðinn hf. starfa á svæðinu
sem og Kratus ehf. þar sem álgjall er endurunnið og
Stálsmiðjan sem þjónustar Norðurál með járnsmíði.
Fyrirtækið Klafi ehf. sér um gámaflutning milli verksmiðja
sem og inn- og útflutning og Uppskipun ehf. sér um uppog útskipun. Vinna við ræstingu, þvottahús og eldhús í
verksmiðjunum er í höndum ISS Ísland ehf. Að auki eru
ýmsir verktakar starfandi á Grundartangasvæðinu sem á
einn eða annan hátt þjónusta verksmiðjurnar og fyrirtækin
þar. Í þeim stóra hópi starfsfólks sem tilheyrir Grundar
tangasvæðinu á Verkalýðsfélag Akraness fjölmarga félags
menn.
Um þessar mundir er í umræðunni bygging þriðju stóru
verksmiðjunnar á Grundartanga en það er fyrirtækið Sili
cor Materials sem hyggst reisa þar sólarkísilverksmiðju
á næstu árum. Ef allt gengur upp í þeim efnum gæti
verksmiðjan hafið störf árið 2017. Má því segja að stórar
verksmiðjur virðist sögunni samkvæmt rísa á um það bil
20 ára fresti á Grundartanga með tilheyrandi innspýtingu
í atvinnulífið á svæðinu. Umrædd sólarkísilverksmiðja
myndi að öllum líkindum skapa 400 ný störf þegar hún
væri komin í fullan gang svo útlit er fyrir áframhaldandi
uppbyggingu á Grundartangasvæðinu.
Sögumoli
Úr fundargerðabók Verkalýðsfélags Akraness 1934
Sú togstreita sem gjarnan hefur myndast á milli Verkalýðsfélags
Akraness og Alþýðusambands Íslands er síður en svo ný af
nálinni. Það er ljóst að Alþýðusambandið hefur oftar en ekki
viljað fara aðrar l