Sámur 3.tbl - árg.36- 2013 | Page 73

- D.23.12. 2011 gaf „Buddha“ (C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian). Gjafabikara fyrir fullorðna gaf JRJ (Kolbrún Jónsdóttir). geta að áfram er nauðsynlegt að halda áfram að láta augnskoða hundana því fleiri augnsjúkdómar finnast sem ekki er enn hægt að DNA-prófa fyrir. Þökkum þeim gjafmildina. Við viljum minna tíbet spanieleigendur á að láta augnskoða hundana sína reglulega til að hægt sé að fylgjast með stofninum. Skráning og allar upplýsingar á skrifstofu HRFÍ. Þeir sem ætla að rækta undan tíkunum sínum og eigendur undaneldishunda verða að vera með gild augnvottorð þegar parað er og má vottorðið ekki vera eldra en 13 mánaða við pörun (sjá reglur um undaneldi á heimasíðu HRFÍ). Einnig er nauðsynlegt að undaneldisdýr séu með ræktunardóm á sýningum áður en þau eru notuð í ræktun. Ef ræktendur óska eftir ráðleggingum ræktunarstjórnar um val á undaneldishundum skal senda skriflega beiðni til stjórnar að minnsta kosti 2 mánuðum fyrir áætlað lóðarí tíkar. kærlega fyrir Nýir ISCh og C.I.B. meistarar Nýr íslenskur meistari hefur fengið staðfestingu frá HRFÍ. Það er tíkin RW-13 ISCh Tíbráar Tinda Pink Lotus „Lotus“. Eigandi og ræktandi hennar er Auður Valgeirsdóttir. Tveir nýir alþjóðlegir meistarar hafa fengið staðfestingu frá FCI. Það eru C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian „Buddha“, eigendur Auður Valgeirsdóttir og Rannveig Rúna Viggósdóttir, ræktandi Auður Valgeirsdóttir og C.I.B. Tíbráar Tinda Tibet´s Pride N Glory „Glory“. Eigandi og ræktandi Auður Valgeirsdóttir. Þess má geta að þessi tvö eru systkini og fékk bróðir þeirra RW-13 C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Prayer Wheel Spinner „Rúbín“ staðfestingu fyrr á árinu. Í fyrsta sinn í sögu tíbet spaniel á Íslandi hefur heilt got náð þeim árangri að hljóta titilinn „alþjóðlegur meistari“. Stjórn deildarinnar óskar eigendum og ræktendum hjartanlega til hamingju með hundana sína. Ræktun-Fjölgun Frostrósar Salka og C.I.B. ISCh Tíbráar Tinda Monastery´s Guardian „Buddha“ eignuðust 4 hvolpa, 2 tíkur og 2 rakka þann 27. ágúst sl. Þau hafa öll fengið góða eigendur. Ræktandi þeirra er Dagný Egilsdóttir. Innflutningur Von er á nokkrum nýjum tíbet spaniel hundum frá útlöndum þannig að það verður gaman að fylgjast með nýjum hundum í deildinni okkar á nýju ári sem fjölgar jafnt og þétt. DNA test fyrir PRA3 Frá því í júlí sl. hefur verið hægt að DNA-prófa tíbet spaniel við augnsjúkdómnum PRA 3. Þess má geta að þessi sjúkdómur er einn af PRA sjúkdómunum sem finnast í tegundinni og er jafnframt sá sjúkdómur sem leggst á hundana mjög unga og verða þeir blindir mjög ungir. Allar uppýsingar um testið má lesa um á rannsóknarstofu The Animal Health Trust í Englandi sem er sú eina sem framkvæmir þetta DNA-próf. Slóðin er http://www.aht.org. uk/ Einnig er velkomið að hafa samband undirritaða um prófið. Heimasíðan okkar er undir stjórn Helgu Kolbeinsdóttur. Slóðin er tibetspaniel.weebly.com Deildin heldur líka úti Facebook-síðu með fréttum og tilkynningum undir nafninu „Tibetan spaniel á Íslandi innan HRFÍ.- Tibetan spaniel in Iceland“. Tölvupóstur er sendur til allra sem eru á póstlistanum okkar um þær uppákomur og tilkynningar sem deildin stendur fyrir. Endilega látið okkur vita ef þið fáið ekki tölvupóst frá okkur og einnig ef breytingar verða á netfangi. Endilega fylgist með síðunum okkar, þar er allt sett inn um starf deildarinnar og uppákomur, eins og göngur og fleira ásamt upplýsingum um tegundina. Með bestu kveðju og ósk um gleðilega jólahátíð og farsæld á nýju ári til ykkar allra. F.h. stjórnar Tíbet spanieldeildar HRFÍ, Auður Valgeirsdóttir formaður. [email protected] eða [email protected] sími 557-5622 eftir kl.13.00 all