Sámur 3.tbl - árg.36- 2013 | Page 54

Hundasvæði Höfundur: Heiðrún Villa Ljósmyndir: Shutterstock Hundasvæði getur verið afbragðs staður fyrir hunda og eigendur að koma á en svæðunum hefur fjölgað á landinu og virðist brýn þörf á að bæta við fleirum. En eru hundasvæði góð fyrir alla? Oft hafa orðið leiðinleg óhöpp á hundasvæðum og slys á hundum. Einnig hafa hundar og eigendur lent í slæmri reynslu sem hefur haft áhrif á félagshæfni hundsins. Það er mikilvægt fyrir hundaeigendur að hafa ákveðnar reglur bakvið eyrað ætli þeir með hundinn sinn á hundasvæði svo að reynslan verði jákvæð og þroskandi bæði fyrir hunda og menn. 54