Sámur 3.tbl - árg.36- 2013 | Page 33

var ágætur að hennar mati en með full-langt trýni og feldurinn þyrfti að vera betri. Havanese-hundarnir voru með allt of mjúkan feld, sem væri líklega vegna þess að of mikil hárnæring hefði verið notuð í feldinn fyrir sýninguna. Hún sagðist hafa reynt að útskýra þetta fyrir sýnendunum og vonaði að þeir hefðu skilið við hvað hún átti. Fallegir hundar í úrslitum Tatjana sagði að hundarnir sem voru í úrslitum hefðu verið frábærir að sínu mati, sérstaklega miðað við heildarstærð sýningarinnar. Hún kvaðst hafa verið sátt við alla hundana sem settir voru í sæt