Sámur 3. tbl 42. árg 2015 | Page 19

fyndist ekki. Þrotlaus leit að eigendum í nágrenninu skilaði engum árangri svo að við létum boð út ganga um að leit að góðu heimili stæði yfir fyrir kisu. Helst hefðum við viljað fóstra hana sjálf en aðstæður okkar leyfðu það ekki. Kisa litla var nú hjá okkur um sinn og braggaðist með degi hverjum. Eftir því sem styrkur hennar jókst, fékk hún ekki lengur aðgang að matnum hans Baxters, enda eignaðist hún fljótlega sinn eiginn matardall. Í fyrstu hafði kisa fengið að kúra hjá Baxter en hann skynjaði það strax þegar hún þurfti ekki lengur á því að halda. 0