Sámur 3. tbl 42. árg 2015 | Page 12

mannfólkinu. Hundarnir veiddu með því að fara inn í lundaholur og draga út úr þeim lifandi fugla. Einnig klifruðu þeir í sjóklettum og sóttu egg úr hreiðrum. Hundarnir hafa einstaka hæfni við að bera egg án þess að brjóta þau. Kjöt af lundafuglinum var notað til manneldis og fiður og dúnn fyrir sængur. Þetta var mikil útflutningsvara og notagildi hundanna gerði þá mjög verðmæta. Um 1850 fóru menn að fanga lundafuglinn með netum og háfum. Þá hvarf hin mikla þörf fyrir hundinn. Í Måstad á Værøy, þar sem tenging fólks við umheiminn var lítil, hélst hefðin um að halda lundahund og má segja að einangrunin hafi bjargað tegundinni. Elanor og Wilhelm F.K. Christie frá Hamri fengu senda nokkra hunda þaðan á millistríðsárunum og komu þau upp um 60-70 hundum. Áður, árið 1925, hafði Norðmaðurinn Sigurd Skaun einnig lagt til ræktunar hundanna. Í seinni heimsstyrjöldinni felldi hundaæði nærrum því alla hunda á Mastad og voru því fengnir þangað aftur hundar frá Hamri. Veiran barst einnig austur síðar og um 1950 voru mjög fáir hundar til. Elanor Christie gerði þá átak og fékk hún fimm hunda senda frá Mastad. Hún fékk fleiri í lið með sér og björguðu þau tegundinni. Pysja og Prófastur eiga auðvelt með að klífa kletta. Ljósm. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir. Lundahundar í nútímanum Í dag eru rúmlega 500 hundar í Noregi, 1000 hundar í heiminum og tveir eru hér á Íslandi. Tegundinni er bjargað en hundum þarf þó að fjölga til að tryggja henni örugga framtíð. Norska hundaræktarfélagið er að vinna gott starf við að verja sína tegund og tryggja heilbrigði hennar. Uppi eru margar kenningar um uppruna lundahundsins fyrir staðfestar heimildir og er ein þeirra sú að þeir eigi rætur að rekja til hunda frá síðasta jökulskeiði og séu því Canis forus en ekki Canis Familiaris eins og þeir hundar sem menn halda í dag. Lundahundur er frábær félagi, heimakær, geltir lítið, hefur vakteðli og finnst gott að kúra hjá fólki. Þessir hundar eru snillingar í afslöppun þrátt fyrir að vera mikil vinnudýr og eru forvitnir, gáfaðir og þrjóskir. Skemmtilegt og einstakt eðli hundanna er ríkt. Þeir eru meðal annars notaðir til að fækka mávum við flugvelli með því að safna eggjum og hafa þannig jafnvel bjargað mannslífum. Margir hverjir eru lunknir við að veiða mýs og rottur, þjálfaðir í dansi, starfa í heimsóknum á vegum Rauða krossins, nokkrir í sporleit og skotveiði, aðrir í hundafimi og hefur fólk jafnvel þjálfað þá til að sækja egg í hænsnakofa. Lundahundar á Íslandi Eriksro Bright Prófastur og Eriksro My Puffin Pysja eru fyrstu ættbókarfærðu Á hverjum fæti hefur lundahundur sex tær. Á framfótum eru fimm þríliða tær og ein tvíliða, en á afturfæti eru fjórar þríliða tær og tvær tvíliða. Ljósm. Anneli Rosenberg. 12 · Sámur 3. tbl. 42. árg. desember 2015