slitgigt betur heldur en fáir og langir. Allt
sem heitir að leika með bolta og leikur
við aðra hunda, þar sem hreyfingarnar
eru snöggar og hraðar, valda miklu álagi
á liðamót og ætti að forðast í alla staði.
Endurhæfing
Æfingar eru mjög mikilvægar og sennilega það mikilvægasta þegar kemur að
því að meðhöndla slitgigt. Reglulegar
(daglegar) æfingar, eins og göngutúrar í
taumi og sund þegar hægt er að koma
því við, eru af hinu góða. Allar æfingar
þurfa að miðast við að viðhalda styrk
og liðleika liðanna eins og mögulegt
er en jafnframt mega þær ekki valda
auknu álagi og ýta undir að liðirnir slitni
enn frekar og valda því meiri skaða en
gagni. Æfingaprógram þarf að sníða
að þörfum hvers. Þá er til dæmis tekið
mið af hvaða lið/liði verið er að eiga
við, hversu slæm slitgigtin er, þyngd,
aldri og ástandi hundsins almennt.
Æfingaprógröm samanstanda yfirleitt af
jafnvægisæfingum, styrktaræfingum og
liðleikaæfingum.
Laser
Lasermeðferð er meðal annars mjög
góð verkjameðhöndlun. Við með-
ferð með Companiona Class IV
laser eru frumur á meðferðarsvæði
örvaðar með ljóseindum (photons)
á ákveðinni bylgjulengd. Við þessa
örvun eykst meðal annars blóðflæðið
á meðferðarsvæðinu sem hefur margvísleg áhrif á frumurnar sem aftur
minnkar bólgur og verki, flýtir gróanda
og fleira. Þessi meðferð er algjörlega
sársaukalaus og flestir hundar slaka
mjög vel á á meðan meðferð stendur.
Eins og svo oft áður eru meðferð
og meðferðafjöldi einstaklingsbundin
og oft notuð í bland við önnur
meðferðarúrræði.
Nudd
Hundar sem eru þjáðir af slitgigt eru
oftar en ekki búnir að færa líkamsþyngdina til, til dæmis frá afturparti
yfir á frampart. Þetta á sérstaklega við
um hunda sem eru með mjaðmalos á
báðum mjöðmum. Einnig færa sumir
þyngdina frá öðrum af \