Hrímnis Litli Vargur.
Ljósm. Sveinn Magnússon.
Skapgerð
Chihuahua hefur oft verið sagður
stór hundur í litlum líkama enda
með eindæmum hugrakkur og
lætur óhikað alla vita að hann
er stærstur, mestur og bestur.
Chihuahua skal vera hugrakkur,
snöggur, líflegur og árvökull. Hann
er hinn besti vakthundur og fylgist
vel með öllu. Chihuahua á hvorki
að vera árásargjarn eða mjög
feiminn en hvort tveggja getur
orðið ef hundurinn fær ekki næga
umhverfisþjálfun á hvolpsaldri.
Felst umhverfisþjálfun í því að
kynna hvolpinn fyrir sem flestu í
umhverfi hans. Chihuahua er ekki
vinnuhundur en á Íslandi hafa
nokkrir staðið sig vel í hundafimi
og einn hefur lokið bronsprófi í
hlýðni. Auk þeirra er einn mjög
virkur
heimsóknarhundur
hjá
Rauða Krossi Íslands og heimsækir
reglulega langveik börn og vitað
er um fleiri sem eru hjálparhundar
eigenda sinna. Chihuahua getur
verið dyntóttur og tekur oft sinn
tíma í hlutina, til dæmis það að koma
sér að matnum. Chihuahua eru
ekki taldir heppilegir barnahundar
enda smáir og ekki þolinmóðasta
hundategundin gagnvart áreiti, þó
alltaf séu á því undantekningar.
Heilsufar
Chihuahua hefur löngum verið talin
einstaklega heilsuhraust tegund en
síðustu ár hafa komið upp ýmis
heilsufarsvandamál. Ekki er víst
hvort þau séu ný af nálinni eða
einfaldlega nýlega uppgötvuð.
Almennt heilsufar flestra chihuahuahunda er gott og fæstir þurfa að
fara mikið oftar til dýralæknis en
í almennar sprautur og skoðanir.
Hundar af þessari tegund hafa náð
allt að 20 ára aldri en algengara er að
þeir lifi til ca. 13 ára aldurs. Helsta
vandamálið í dag er hnéskeljalos
sem hrjáir suma hunda, vægt
hnéskeljalos háir almennt ekki
hundinum en séu hnéskeljarnar
mjög lausar getur það háð þeim
í samræmi við það. Skylda er að
augnskoða chihuahua áður ræktað
er undan þeim en augnsjúkdómar
teljast þó ekki algengir í tegundinni.
Þeir geta fengið míturhljóð í hjarta
en það greinist sjaldnast fyrr en
um og eftir 8 ára aldur. Tannleysi
er ekki óalgengt í tegundinni og þá
bæði vegna erfða og einnig vegna
þess hve tegundin er gjörn á að
safna tannstein sem leiðir svo til
tannholdsbólgu og tannmissis.
er að fylgjast með tönnum hundsins,
að þær safni ekki tannsteini og
sjá til þess að hann sé hreinsaður.
Algengt er að chihuahua séu frekar
matgrannir fram á fullorðinsaldur
og frekar renglulegir enda ná þeir
ekki fullri fyllingu fyrr en á milli 2
og 3 ára aldurs. Chihuahua þarf
reglulega hreyfingu til þess að líða
vel og fullorðinn hundur í góðu
formi þolir vel styttri fjallgöngur
og góða göngutúra. Hvolpa ætti að
hreyfa stutt í einu til þess að leggja
ekki of mikið álag á liði og bein í
vexti. Mikið er til af fatnaði gerðum
fyrir tegundina sem er þó oftast
ónauðsynlegur fyrir þá síðhærðu en
þeir snögghærðu eru iðulega meiri
kuldaskræfur og getur verið gott að
eiga hlýtt vesti til þess að sannfæra
þá um að fara út á veturna.
Ræktun
Misty Meadow’s What a Kiss.
Ljósm. Bjarki Már Gunnarsson.
Umhirða
Eins og áður sagði er umhverfisþjálfun mjög mikilvæg fyrir
chihuahua til þess að þeir virki sem
best í umhverfinu.
Chihuahua þarf mjúkan aga og
ekki þýðir að beita þá hörku eða
fara að þeim með offorsi. Þeir
þurfa stundum tíma til að taka út
aðstæður og þá er best að gefa
þeim þann tíma. Lítil feldhirða
fylgir tegundinni en gott er að
bursta þá annað slagið og venja þá
við handfjötlun svo að heimsóknir
til dýralæknisins verði auðveldari.
Einnig þarf að klippa klær reglulega.
Gott er að gefa chihuahua-hvolpum
að borða þrisvar til fjórum sinnum
á dag og fullorðnum hundum
tvisvar sinnum til þess að halda
blóðsykri stöðugum. Nauðsynlegt
6 · Sámur 2. tbl. 38. árg. september 2014
Innan HRFÍ hefur verið haldið vel
utan um ræktun á tegundinni og hefur
verið gott samstarf milli Chihuahuadeildarinnar og stjórnar HRFÍ
um kröfur um heilsufarsskoðanir
sem nauðsynlegar eru fyrir
pörun. Einnig hefur deildin verið
í samstarfi við chihuahuaklúbba
Norðurlandanna, sótt sameiginlega
stefnumótunarfundi
og
verið
með þeim fyrstu til að innleiða
nýjar reglur í ræktun og reglulega
eru gerðar kannanir á heilsufari.
Íslands-Ísafoldar Kolka og Perluskins Casper
Dínó. Ljósm. Klara Símonardóttir.
Chihuahua er ekki fyrir alla en þeir
sem kynnast tegundinni heillast
iðulega af henni enda eins og sannur
chihuahua myndi segja; chihuahua stærstir, mestir og bestir!