Deildafréttir
tíkunum sínum og eigendur
undaneldishunda verða að
vera með gild augnvottorð
þegar parað er og má vottorðið
ekki vera eldra en 13 mánaða
við pörun (sjá reglur um
undaneldi á heimasíðu HRFÍ).
Ræktun
Kröfur ræktunarstjórnar
til undaneldis eru þær
að ræktunardýrin séu
ræktunardæmd á sýningum
HRFÍ eða öðrum sýningum
viðurkenndum af HRFÍ
oftar en einu sinni með
lágmarkseinkunnina
„very good“. Einnig verða
undaneldisdýrin að vera með
gild augnskoðunarvottorð
(viðurkennd af HRFÍ). Vottorð má
ekki vera eldra en 13 mánaða við
pörun. Ef ræktendur óska eftir
ráðleggingum ræktunarstjórnar
um val á undaneldishundum skal
senda skriflega beiðni til stjórnar
að minnsta kosti 2 mánuðum
fyrir áætlað lóðarí tíkar til að
öruggt sé að hún verði tekin fyrir
og afgreidd í tæka tíð fyrir pörun.
Heimasíðan okkar er undir stjórn
Helgu Kolbeinsdóttur. Slóðin er
tibetspaniel.weebly.com Deildin
heldur líka úti Facebook-síðu
með fréttum og tilkynningum
undir nafninu „Tibetan spaniel
á Íslandi innan HRFÍ.- Tibetan
spaniel in Iceland“. Tölvupóstur
er sendur til allra sem eru á
póstlistanum okkar um þær
uppákomur og tilkynningar sem
deildin stendur fyrir. Endilega
látið okkur vita ef þið fáið ekki
tölvupóst frá okkur og einnig
ef breytingar verða á netfangi.
Endilega fylgist með síðunum
okkar, þar er allt sett inn um
starf deildarinnar og uppákomur,
eins og göngur og fleira ásamt
upplýsingum um tegundina.
Með bestu kveðju til
ykkar allra, bæði tví-og
fjórfættra. Vonumst eftir að
sjá ykkur sem flest í haust
og vetur á uppákomum
félagsins og deildarinnar.
F.h. stjó