Siðanefnd HRFÍ
Siðanefnd er kosin á aðalfundi HRFÍ og starfar á grundvelli laga félagsins og leysir úr málum eftir
ákvæðum þeirra laga. Síðustu ár hefur nefndin fengið til sín fjölda mála og er það býsna dapurt að
félagsmenn í okkar ágæta félagi skuli gerast brotlegir við sínar eigin settu reglur.
Siðanefnd telur það því ákjósanlegt að koma að upplýsingum um störf nefndarinnar í félagsblaði
HRFÍ, Sámi og þakkar ritnefndinni áhugann. Ritnefnd Sáms hefur beint eftirfarandi spurningum til
nefndarinnar sem reynt verður að svara hér samkvæmt bestu vitund og verða lesendur Sáms vonandi
einhverju nær um störf nefndarinnar eftir lesturinn.
Hvernig mál fær siðanefnd
inn á borð til sín?
Hvernig er tekið á málum?
Eru málin misalvarleg?
Málin sem siðanefnd fær til
afgreiðslu og úrlausnar eru aðallega
brot á grundvallarreglum fyrir
félagsmenn í HRFÍ og langflest
þeirra eru kærur vegna vöntunar
á heilsufarsvottorðum, sér í lagi
augnvottorðum,
þegar
pörun
fer fram. Það skal áréttað hér að
mjög mikilvægt er að öll tilskilin
heilsufarsvottorð liggi fyrir við pörun
til að koma í veg fyrir erfðasjúkdóma.
Það ætti að vera hverjum ræktanda
kappsmál að viðhalda heilbrigði
tegundarinnar eins og best verður
við komið og láta heilsufarsskoða
undaneldisdýr eins og reglur kveða