Alþjóðleg sýning
retriever og kvaðst mjög sáttur með gæði tegundanna í heild.
Besti hundur tegundar í labrador retriever stóð upp úr að hans
mati á sunnudeginum. „Ég dæmdi tegundahóp 8 og fannst mér
allir hundarnir virkilega góðir. Einnig dæmdi ég úrslit um besta
ungviði sýningar og þar fann ég marga mjög lofandi hvolpa.“
Aðspurður um ráð okkur til handa sagði hann okkur vera á réttri
leið en einstaka hundar þyrftu þó meiri þjálfun í hringnum sem
væri þó ekki einungis bundið við Ísland.
Yngsti dómari Íslands
Hin íslenska Sóley Ragna Ragnarsdóttir er aðeins 18 ára gömul
og er yngsti íslenski dómarinn og einn af yngstu dómurum
heims. Henni fannst frábært að sýningarnar væru haldnar utan
dyra. „Andrúmsloftið var fyrir vikið léttara og enginn virtist láta
rigninguna á sig fá. Mér fannst samheldni og einhugur einkenna
sýninguna og augljóst var að allir tóku þátt í að leysa þau mál
sem komu upp.“ Þetta var frumraun Sóleyjar í dómarastarfinu,
enda nýbúin að fá dómararéttindi, og þótti henni vænt um að
fyrsta skiptið væri á Íslandi. „Mig langar að þakka sýnendum fyrir
jákvætt viðmót og hlýjar móttökur.“
Mikilvæg tegundareinkenni
Sóley Ragna dæmdi fjölmarga chihuahua-hunda, bæði síð- og
snögghærða. „Ég var almennt mjög ánægð með þá síðhærðu.
Á þessum árstíma skarta þó síðhærðir hundar yfirleitt ekki sínu
fegursta en feldgæðin voru eigi að síður mjög góð.“ Besti hundur
tegundar var tík úr meistaraflokki sem bjó yfir mikilvægum
tegundareinkennum, var í góðu líkamlegu formi og andlegu
jafnvægi. Hún sagði unga rakkann, sem varð besti hundur
tegundar af gagnstæðu kyni, mjög efnilegan og ætti án efa
framtíðina fyrir sér.
Snögghærðu chihuahua-hundarnir voru margir hverjir mjög
fallegir að mati Sóleyjar Rögnu en því miður skorti suma þeirra
sjálfstraustið sem á að einkenna þessa litlu hunda. „Besti hundur
tegundar var glæsilegur rakki með allt sem prýða á góðan chihuahua.
Hann var með virkilega fallegt höfuð, frábærar hreyfingar og
mikla útgeislun.“ Besti hundur tegundar af gagnstæðu kyni var
falleg tík í góðu jafnvægi, að sögn Sóleyjar. „Þessum smáu knáu
hundum fannst þeim greinilega ekki samboðið að ganga í blautu
grasinu svo að ég mæli með því að eigendur æfi hundana sína
undir berum himni fyrir næstu útisýningu, hvernig sem viðrar.“
Góð skráning pug-hunda
Sóley Ragna dæmdi 27 pug-hunda og kom fjöldinn henni
skemmtilega á óvart þar sem algengt var að aðeins einn til tveir
væru skráðir fyrir ekki svo löngu síðan. Nokkrir efnilegir hvolpar
voru skráðir til leiks og var þar svört tík sem stóð upp úr og var
valin besti hvolpur tegundar. „Hún var með dæmigert höfuð,
frábæran feldlit og mjög góðar hreyfingar.“ Tík úr opnum flokki
varð besti hundur tegundar en að mati Sóleyjar Rögnu var hún
mjög heilsteypt í útliti og með fallegt höfuð. Hreyfingar hennar
voru virkilega góðar og nýtti hún hvert skref til fullnustu, eða
eins og sagt er á ensku „covered a lot of ground“. „Besti hundur
tegundar af gagnstæðu kyni var kröftugur rakki með ákaflega
Tegundahópur 3: 1. sæti
FICh Narcissus Majesty Of Rock
Yorkshire terrier
Eigandi: Kristine Erla Olson
Ræktandi: Petra Puurula
Tegundahópur 4/6: 1. sæti
ISShCh
Luna Caprese Immagine Allo Speccio
Dachshund, miniature, síðhærður
Eigandi: Hallveig Karlsdóttir
Ræktandi: Lamarca Francesco
Tegundahópur 5: 1. sæti
ISCh Múla Hríma
Siberian husky
Eigendur: Olga Rannveig
Bragadóttir & Haraldur K.
Hilmarsson
Ræktandi: Steindór V.
Sigurjónsson
Tegundahópur 8: 1. sæti
ISShCh Freyvangs Dimma
Labrador retriever
Eigandi/ræktandi:
Helgi Bjarni Óskarsson
Tegundahópur 9: 1. sæti
Gin Gin von Savaredo
Shih tzu
Eigandi: Súsanna Antonsdóttir
Ræktandi: Günther Hamacher