verið bólusettir gegn borreliosis.
Enginn hundur mældist jákvæður
en fimm hundar voru svokallaðir
„borderline“, það er mótefnin
mældust hærri en hjá þeim
sem mældust neikvæðir en þó
ekki nógu há til að þeir teldust
jákvæðir. Niðurstaðan var því
sú að líkurnar á smiti af völdum
borreliu akteríunnar væru litlar.
b
Temple Grandin
Frumlegur aðgerðasinni
með hag dýra fyrir
brjósti
Er mögulega hægt að
fyrirbyggja bit?
Já, til dæmis eru til hálsbönd
(flóahálsbönd) sem innihalda efni
sem fæla mítlana frá og eins eru
svokölluð spot nyf notuð, til
o l
dæmis stronghold®, front line®
og fleiri tegundir.
Temple Grandin hefur
unnið mikið með nautgripi.
Höfundur: Heiðrún Villa
Mynd 2 - Blóðmítill á hundi (ixodes ricinus)
www.thepetcenter.com
Að lokum
Verði eigandi var við blóðmítil
á hundi sínum skal fjarlægja
hann sem fyrst. Þannig minnka
líkurnar á því að mítillinn geti
borið smit í hundinn. Mikilvægt
er að fjarlæga allan mítilinn,
það er að munnstykkið verði
ekki eftir í húð hundsins og geti
þannig valdið húðsýkingu. Best
er að nota þar til gerðar tangir
til verksins. Nái eigandi ekki
að fjarlægja mítilinn skal hafa
samband við dýralækni.
Heimildir:
Lísa Bjarnadóttir: Flåtbårne infektioner
hos hund en oversigt. 2005. Verkefni
í tengslum við fag ýralæknisnám í
d
sjúkdómum hunda og katta.
Lísa Bjarnadóttir: .
A seroepidemiological survey for
antibodies to Borrelia burgdorferi s.l.
in dogs in Iceland. 2007. Lokaverkefni í
fagdýralæknisnámi í sjúkdómum hunda
og katta.
Temple Grandin fæddist í Boston, Massachusetts árið 1947. Um tveggja
ára aldur var Temple greind með einhverfu sem fékk móður hennar
til að ráða barnfóstru sem var ætlað að hjálpa Temple við leik og mál.
Seinna fór Temple í einkaskóla og fékk góða hjálp við að læra að tjá sig
en hún var mjög seinþroska. Temple segir sjálf að grunnskólaárin hafi
verið góður tími fyrir hana en þegar í framhaldsskóla var komið var hún
álitin skrítin og lögð í einelti.
Þrátt fyrir erfiðleika útskrifaðist
Temple og náði sér í gráður í sálfræði,
dýravísindum og læknavísindum. Hún
hélt marga fyrirlestra um upplifun sína
á einhverfu, meðal annars hvernig
henni fannst allt í umhverfi sínu ógna
sér, hvernig hljóð og ljós höfðu áhrif
á hana og margir lögðu leið sína á
fyrirlestrana til að heyra hennar hlið á
einhverfu. Hún sótti mikið í að hjálpa
dýrum og lagði til að mynda mikla
vinnu í að skapa „slátrunarkerfi“
sem var ætlað að auðvelda dýrunum
ferðina í sláturhúsið og haga slátrun
þeirra eins mannúðlega og mögulegt
var. Henni blöskraði meðferð dýranna.
Hún var frumkvöðull í að fá eigendur
sláturhúsa í lið með sér með því að
sýna þeim hvað þau myndu græða á
að fá óttalaus dýr til slátrunar. Margir
þeirra létu endurbyggja kerfið hjá sér
eftir teikningum Temple. Mörgum
þótti merkilegt þegar hún útskýrði
hvers vegna dýrin vissu ekki að þau
væru á leið í slátrun, að hræðsla þeirra
í aðstæðunum kæmi ekki vegna þess
heldur vegna aðbúnaðar á leiðinni til
slátrunarinnar.
Helsta einkenni Temple, eins og hún
segir sjálf, er að hún hugsar algjörlega
í myndum. Hún telur að það eigi hún
sameiginlegt með dýrunum og geti
því skilið þau á marga vegu og þannig )