frábrugðið því sem gengur og gerist
annars staðar. Hundar mega hvergi
vera, það er erfitt að ferðast með
þá og ógjörningur að taka þá með
sér út fyrir landsins steina.” Eftir
að Sída hóf að rækta hafa draumar
hennar alltaf verið stórir og hefur
hún leitast við að láta þá rætast eftir
bestu getu. Það er að hennar sögn
mun auðveldara í Svíþjóð ,,Mér
fannst til dæmis mjög erfitt hve
takmarkaðir möguleikar mínir voru
í ræktun vegna einangrunarinnar.
Að vera hundaræktandi í Svíþjóð
er mun auðveldara en á Íslandi. Hér
lána ræktendur hunda á milli landa,
auðvelt er að fara til annarra landa til
að para tíkina sína og svo mætti lengi
telja.” Sídu langaði einnig að sýna
hundana sína í mikilli samkeppni
því fyrir henni snerist þetta aldrei
um að hundarnir hennar yrðu bestu
hundar tegundar, hún vildi eitthvað
meira en það. Í Svíþjóð standa
hundaáhugafólki allar dyr opnar,
hvort sem það er einhvers konar
vinna með hunda, til dæmis hlýðni,
sporaþjálfun og varnarþjálfun eða
sýningar. Allir ættu að finna eitthvað
við sitt hæfi enda starfið mjög virkt
innan þessara hópa.
Á alþjóðlegri sýningu í Lúxemborg öðluðust chinese crested-feðgarnir, Inya Dreams Not Just a Pretty Face og
faðir hans, SECh LUCh USCh Curlious Cache Is King meistaranafnbætunar Lux. Jr. Ch (Lúxemborgar
ungliða-meistari) og LUCh (Lúxemborgar meistari).
Menningarsjokkið
Eins og áður sagði flutti Sída til
Svíþjóðar árið 2008 og vógu þættir
eins og löngun í eitthvað nýtt, nýjar
áskoranir og tilbreyting þyngst
þegar ákvörðunin var tekin. ,,Ég
var búin að vera mikið í Svíþjóð
á hundasýningum og að hitta
ræktendur og líkaði einstaklega vel.
Það er svo margt sem mér finnst
aðlaðandi við land og þjóð og
margt sem við Íslendingar mættum
taka okkur til fyrirmyndar.” Hún
segir hundalífið í Svíþjóð frábært
enda séu möguleikarnir endalausir
og þar er svo sannarlega eitthvað
sem gefur manneskju eins og henni
mikinn innblástur. Hundarnir tóku
flutningunum vel en Sída segir að
,,menningarsjokkið” hafi komið
örlítið seinna þegar hún áttaði sig
enn betur á þeirri frábæru staðreynd
að hundar mættu alls staðar vera; í
strætisvögnum, lestum, í miðbænum
og svo mætti lengi telja.
Groom It
Silfurlitaði dvergpúðlinn, Multi Ch. Kudos Elsker, náði sér í titilinn LUCh á alþjóðlegri sýningu í Lúxemborg.
14 · Sámur 2. tbl. 38. árg. september 2014
Sída á og rekur fyrirtækið ,,Groom
It” sem sérhæfir sig í feldvörum
fyrir hunda. Hún er dreifingaraðili
,,Pure
Paws”-feldvaranna
á
Norðurlöndunum og einnig