dómaraefni langt komin í námi sínu og nokkrir útskrifaðir sem er mjög jákvætt
fyrir framtíðina. Svo eigið þið marga hæfileikaríka unga sýnendur þannig að
framtíðin er björt.”
Schnauzer af miklum gæðum
Besti öldungur sýningar
C.I.B. ISCh Anyka Bootylicious Babe
Siberian husky
Eigendur: Örn Eiríksson & Stefán Arnarson
Ræktandi: Mrs S Baker
Yolanda Berdugo frá Ísrael kvaðst ánægð með skipulag sýningarinnar og sagðist
hafa dæmt marga fallega hunda. Hún var sérstaklega ánægð með schnauzer í
heild. ,,Auðvitað voru ekki allir framúrskarandi en ég gaf flestum ,,excellent”
enda var tegundin í heild af mjög miklum gæðum.” Hún sagðist hafa séð marga
fallega hunda í tegundahópi 9 þó hún hefði ekki dæmt margar tegundir innan
þess hóps. Einnig nefndi hún siberian husky sem hún sagði af miklum gæðum
miðað við þá sem hún sá í úrslitum sýningar.
Öldungarnir í góðu ástandi
Yolanda dæmdi úrslit í tegundahópi 5 þar sem alaskan malamute var
hlutskarpastur og var hún mjög hrifin af honum. Einnig dæmdi hún úrslit um
besta öldung sýningar. ,,Ég hefði getað valið mun fleiri en þessa fjóra sem urðu
í verðlaunasætum. Þeir voru margir hverjir í frábæru líkamlegu ástandi. Mér
finnst alltaf gaman að dæma öldunga og það er svo ánægjulegt þegar fólk á
hunda á þessum aldri.”
Yolanda sagði almenn gæði hundanna á Íslandi mjög mikil. ,,Það er svo mikil
synd að hundarnir þurfi að fara í einangrun. Ég er viss um að þið gætuð gert
enn betur í ræktun ef tækifærin væru fleiri. Þið gætuð farið til útlanda og sýnt
hundana ykkar og fólk myndi án efa koma til Íslands og sýna hundana sína hér,
enda mjög vel skipulagðar sýningar og fólkið vingjarnlegt.” Að lokum sagðist
hún vona að við héldum áfram á þessari braut. ,,Ég vona að einangruninni
verði aflétt. Þið þurfið alltaf nýtt blóð og mun auðveldara er að nálgast það
þegar einangrunin er ekki lengur til staðar. Hér er allt í hæsta gæðaflokki.”
Cavalier-hvolpurinn heillaði
Ungir sýnendur – yngri flokkur – 1. sæti
Védís Huld Sigurðardóttir með australian shepherd
Jussi Liimatainen frá Finnlandi hrósaði starfsfólki í hástert sem og flæði
sýningarinnar og sagði sýnendur mjög vingjarnlega.
Hann dæmdi nokkrar tegundir í tegundahópi 9 og minntist á fallega pug-hunda
sem og cavalier king charles spaniel sem hann dæmdi. „Cavalier-hvolpurinn,
sem varð besti hvolpur dagsins, var algjörlega frábær! Ég veit að ég á ekki að
bera saman hvolpa og fullorðna hunda en hann var klárlega besti cavalierinn af
öllum og á svo sannarlega bjarta framtíð.”
Tíbet spaniel og papillon báru af
Hann dæmdi úrslit í tegundahópi 9 og var mjög hrifinn af öllum hundunum
sem urðu í verðlaunasætum en einnig voru aðrir sem heilluðu hann. ,,Tíbet
spaniel-tíkin var svo falleg. Hún hreyfði sig frábærlega og ég hafði mikla ánægju
af því að gefa henni 1. sætið þar sem tegundin sigrar ekki oft í tegundahópnum.
Ég sýndi tíbet spaniel-hunda á árum áður og tegundin er mér því kær. Í 2. sæti
var mjög falleg papillon-tík af frábærri tegundargerð, í góðum hlutföllum og
með fallegar hreyfingar. Mér fannst þessar tvær standa upp úr.”
Það var honum mikill heiður að dæma íslenska fjárhundinn og var hann
ánægður með fjöldann sem var sýndur. ,,Mér fannst mjög ánægjulegt að fá
tækifæri til að dæma hann hér á Íslandi. Ég hef dæmt tegundina í Finnlandi og
öðrum löndum en þetta var alveg sérstakt.”
Afghan hound kom á óvart
Ungir sýnendur – eldri flokkur – 1. sæti
Hafdís Jóna Þórarinsdóttir með shetland sheepdog
Sú tegund sem kom honum mest á óvart var afghan hound en gæðin
tegundarinnar voru mjög mikil. ,,Í mörgum löndum eru gæði hundanna mjög
blönduð en hér á Íslandi voru allir mjög fallegir. Ég gaf öllum ,,excellent” og