Kæru félagsmenn
Aðalfundur félagsins er fyrirhugaður 26 maí nk. og markar hann
tímamót. Jóna Th. Viðarsdóttir formaður félagsins hefur ákveðið
Stjórn HRFÍ
að gefa ekki kost á sér áfram. Það er því við hæfi að þakka Jónu
Formaður:
Jóna Th. Viðarsdóttir
Varaformaður:
Herdís Hallmarsdóttir
Gjaldkeri:
Arinbjörn Friðriksson
Meðstjórnendur:
Arinbjörn Friðriksson,
Brynja Tomer,
Guðmundur A. Guðmundsson,
Ragnhildur Gísladóttir og
Sóley Halla Möller
Ábyrgðarmenn:
Fríður Esther Pétursdóttir og
Jóna Th. Viðarsdóttir
Ritstjóri:
Stjórn HRFÍ
Auglýsingar:
[email protected]
Umbrot:
Linda Björk Jónsdóttir
Sámur kemur út tvisvar sinnum á ári í 2000
eintaka upplagi. Blaðið er fyrst og fremst
sent skuldlausum félögum HRFÍ. Auk þess
fá erlend hundaræktarfélög, fjölmiðlar,
sjúkrastofnanir og bókasöfn blaðið sent
til sín. Tímaritið er einnig selt í lausasölu.
Aðsent efni í blaðið er á ábyrgð höfundar
og þarf ekki að lýsa skoðun ritnefndar
eða stefnu félagsins. Eftirprentun er
bönnuð nema að fengnu leyfi höfundar.
Útgefandi:
Hundaræktarfélag Íslands
Síðumúla 15
108 Reykjavík
Sími: 588-5255
Vefsíða: www.hrfi.is
Netfang: [email protected]
ISSN 1027-4235
Sámur 1. tbl 40. árg 2015
ötult og gott starf fyrir félagið okkar síðustu 20 árin. Enda þótt
Jóna hætti afskiptum af stjórn er kunnur hugur hennar til félagsins og því víst að við
munum áfram njóta krafta hennar.
Í lögum HRFÍ er gert ráð fyrir að boðað sé til aðalfundar félagsins bréflega með tíu
daga fyrirvara. Slík boðun er félaginu afar kostnaðarsöm og því er ráðgert í lögunum
að nægilegt sé að birta fundarboð í félagsblaðinu okkar, Sámi. Eins og ákveðið var
á síðasta aðalfundi er Sámur gefinn út tvisvar sinnum á ári, um mitt ár og í lok árs.
Lögin hafa ekki tekið breytingum í takti við nútímann og því brá stjórn félagsins á
það ráð að gefa út blaðið á rafrænu formi til að fullnægja áskilnaði laganna. Um er að
ræða aukaútgáfu sem helguð er aðalfundinum. Í blaðinu er dagskráin birt en einnig
er það tækifæri nýtt að kynna þá frambjóðendur sem hafa ákveðið að gefa kost á sér
til starfa í stjórn félagsins. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir félagsmenn eru
reiðubúnir að starfa í stjórn á næsta tímabili.
Það blasir við að meðal þeirra verkefna sem ný stjórn þarf að takast á við er að
undirbúa tillögur að lagabreytingum sem hægt yrði að leggja fyrir næsta aðalfund
félagsins. Kominn er tími á heildarendurskoðun laga félagsins en sérstaklega hafa
félagsmenn kallað eftir breytingum á III. Kafla laganna sem fjallar um félagsfundi.
Í því samhengi er nauðsynlegt að færa í nútímalegra horf ákvæði er varða boðun til
félagsfunda og eins þarf að skoða hvernig félagsmenn geta nýtt kosningarétt sinn.
Væri gott ef hægt væri að koma til móts við félagsmenn á landsbyggðinni hvað það
varðar.
Vonandi sjá sem flestir sér fært að mæta á aðalfund félagsins að þessu sinni.
Herdís Hallmarsdóttir, varaformaður HRFÍ.
Efnisyfirlit
Aðalfundarboð. . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
4
Framboðskynning: Herdís Hallmarsdóttir . . . . . . . . . . . . . . . . . . .
6
Framboðskynning: Daníel Örn Hinriksson. . . . . . . . . . . . . . . . . . .
8
Framboðskynning: Guðbjörg Guðmundsóttir. . . . . . . . . . . . . . . . . . 10
Framboðskynning: Guðný Vala Tryggvadóttir . . . . . . . . . . . . . . . . . 12
Forsíðumyndina prýðir Afghan-tíkin
ISCh Affietude Standing in the Spotlight.
Eigandi og ræktandi: Auður Sif Sigurgeirsdóttir.
Ljósmyndari: Þorsteinn Thorsteinson.
Framboðskynning: Pétur Alan Guðmundsson. . . . . . . . . . . . . . . . . 14
Framboðskynning: Þórdís Björg Björgvinsdóttir . . . . . . . . . . . . . . . . 16
Framboðskynning: Brynja Tomer . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . . 18