Sumarstarf Undralands 2021 Sumar 2021 | Page 2

Velkomin í sumafrístund UNdralands 2021

Í þessum kynningarbæklingi má finna upplýsingar um sumarstarfið í Undralandi. Sumarfrístundin er frábrugðin hinu hefðbundna starfi Undralands, svo það er gott að kynna sér allar upplýsingar vel.

Sumarstarfið er byggt upp á þemavikum. Skráð er í sumarfrístund viku og viku í senn og því hægt að velja vikur sem ná yfir áhugasvið barnsins.

Á sumrin snýst Undraland nær eingöngu um útiveru, ævintýri og ferðalög. Við erum alla daga á flandri og því mikilvægt að barnið sé búið undir slíkar ferðir.

Á næstu síðum eru upplýsingar um þemavikur, dagsetningar, gjaldskrá, upplýsingar um skráningu og margt annað sem gott er að vita.