Myndir mánaðarins Ágúst 2017 tbl. 283 DVD-VOD-hluti | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins Stjörnuspá mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Af einhverjum ástæðum eru möl- flugur áberandi í kortunum þínum sem þýðir að þú þarft að fara að taka til í skápnum. Þú sigrar glæsi- lega í dorgveiðikeppni í Alaska. Þú tekur hlutunum allt of alvarlega og ættir að fara að slaka dálítið á kröfunum sem þú gerir. Hvað með það þótt einhver hafi sagt að þú getir ekkert í fótbolta? Kommon. Þar sem greindarvísitala þín er lág þessa dagana vegna skorts á orku og vitsmunum skaltu ekki taka að þér nein verkefni á næstunni sem krefjast hugsunar, t.d. útreikninga. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Krabbinn 22. júní - 22. júlí Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Þú hefur lifað langt um efni fram að undanförnu og þarft því annað hvort að redda þér meiri peningi eða slá Lamborghini-kaupunum á frest, a.m.k. fram á næsta ár. Settu hreint á rúmið í næstu viku því þú átt von á gesti úr fortíðinni. Mundu eftir að sópa öllum vanda- málunum sem þú hefur glímt við undir teppið áður en hann kemur. Það eru bjartir tímar framundan hjá þér með blómi í haga, senni- lega lúpínu. Farðu þér samt hægt í umferðinni á næstunni svo þú farir ekki í út í skurðinn eins og Þráinn. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Þú virðist vera með allt á hornum þér þessa dagana sem er allt í lagi svo framarlega sem það er ekki þvotturinn sem hvarf af snúrunum hjá Sigríði á Þeistareykjarstöðum. Það gengur flest á afturfótunum hjá þér þessa dagana og því færðu gott tækifæri til að nota framfæt- urna meira. Kauptu þér sements- poka til að prófa hvernig það er. Samkvæmt stjörnunum bendir allt til að þú farir hringinn í ágúst eða að þú endir a.m.k. á sama stað og þú byrjaðir. Skjóttu upp nokkrum flugeldum til að fagna haustinu. Nautið 20. apríl - 20. maí Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Það er kominn tími til að þú takir hlutunum alvarlega og því mæla stjörnurnar sterklega með að þú fáir þér áttavita og staðsetningar- tæki sem heldur þér á Jörðinni. Ef þér leiðist að hjakka alltaf í sama farinu skaltu finna þér nýtt áhuga- mál sem gerir ekki meiri kröfur til þín en þú höndlar. Við mælum með gosflösku- eða krikketspaðasöfnun. Ef þú hefur ekkert betra að gera mæla stjörnurnar með því að þú lesir öll ritverk Shakespeares en það á eftir að koma sér vel næst þegar þú lendir í spurningakeppni. Stórmerkilegar staðreyndir, eða þannig ... Dane DeHaan rekur m.a. ættir sínar til Hollands og þaðan er ættarnafn hans komið. De haan þýðir bókstaflega „hani(nn)“ á hollensku. Systir hans, sem er með honum hér á myndinni fyrir ofan, heitir Meghann Carl DeHaan. Richard Gere varð stórstjarna eftir að hann lék í myndunum Days of Heaven (1978), American Gigolo (1980) og An Officer and a Gentleman (1982). Í öllum tilfellum hafði John Travolta hafnað hlut- verkunum. Eftir að Richard, sem er búddisti og aðdáandi Dalai Lama, gagnrýndi kínversk stjórnvöld fyrir mannréttindabrot í Tíbet, m.a. í ræðu á Óskarsverðlaunahátíðinni árið 1993, hafa allar myndir með honum verið bannaðar í Kína. Þetta varð afdrifaríkt fyrir feril hans því síðan hefur hann ekki komið til greina í hlutverk í stórmyndum sem til stendur að sýna í Kína. 6 Myndir mánaðarins Velski leikarinn Michael Sheen ólst upp í bænum Port Talbot eins og Richard Burton, en þar er Anthony Hopkins einnig fæddur. Faðir Michaels, Meyrick Sheen, vann um langt skeið fyrir sér sem Jack Nicholson-tvífari, enda er hann sláandi líkur Jack í útliti. Steve Buscemi, sem er fæddur í Brooklyn 13. desember 1957, starfaði sem slökkviliðsmaður í New York á árunum 1980 til 1985,