Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 8

Gullkorn Þú færð mig ekki til að kvarta yfir hlut- skipti mínu. Ég hef notið þeirrar gæfu að hafa haft nóg að gera í 24 ár en á sama tíma séð miklu hæfileikaríkari leikara en mig koma og hverfa vegna verkefnaskorts. Þetta er grimm veröld. - Ryan Reynolds. Ég var hræðilegur í þeirri mynd (Thra- shin'). Hún, og svo myndin Hollow Man nokkrum árum síðar, fengu mig til að hugsa um að skipta um starf. - Josh Brolin, um sína verstu frammi- stöðu sem leikari. Ég veit að mörgum finnst ekki mikið til starfs leikarans koma en fyrir mér þá er það hin fullkomna reynsla. Maður fær að lifa lífi fjölmargra fyrir verð eins. - Natalie Dormer. Ég elska að leika en ef ég þarf að segja eitthvað neikvætt um þessa vinnu þá er það það að stundum þarf maður að yfirgefa heimili sitt, vini og ættingja í margar vikur á meðan maður vinnur. Á móti kemur að á milli verkefna getur maður oft tekið sér langt frí. - Douglas Booth. Það er algjörlega fáránlegt að 95,9 prósent af mannkyninu skuli eltast við að líta út eins og 0,1 prósentið. - Melissa McCarthy. Ég er í minni eigin herferð. Ég er að reyna að sannfæra fólk um að við viljum öll í raun það sama þótt okkur greini á um aðferðirnar til að fá það. Vandamálið er að fólk ruglar of oft saman ferðinni og áfangastaðnum. - Bryan Cranston. Það tekur langan tíma að fullorðnast, miklu lengri tíma en fólki er sagt. - Candice Bergen. Það er bókstaflega starf grínistans að gera grín að hlutunum. Þar á ekkert að vera undanskilið. Allt getur verið fyndið frá ákveðnum sjónarhornum. - Donald Glover. Langerfiðasta leikverkefnið er að leika í vikulegum sjónvarpsþáttum. Ég hef séð marga brenna út í því starfi. - Don Johnson. Ég elska að leika á sviði, en bara í takmarkaðan tíma í einu. Ég lék einu sinni sama hlutverkið í sex mánuði og það var mjög erfitt. Allt umfram fjórtán vikur er of mikið fyrir mig. - Stanley Tucci. Fullt af fólki leit þannig á að ég væri alltaf að leika einhverja lúsera. Frá mínum sjónarhóli var ég bara að leika ósköp venjulegt fólk. - Timothy Spall, að tala um hlutverkin sem gerðu hann frægan fyrr á árum. Ég eyði ekki tíma mínum í að hugsa um hvað gagnrýnendum á eftir að finnast. Ég er bara þakklát fyrir tækifærið til að vinna með besta fólki í heimi að því að skapa sögur sem eiga fullt erindi til allra. - Shailene Woodley. Umhverfisvernd snýst ekki bara um umhverfið heldur heilbrigða hugsun. - Alicia Silverstone. Leiðinlegast af öllu var að þurfa að hafna hlutverkinu í The Hobbit. En þetta var skuldbinding upp á rúmt ár fjarri heimilinu og fjarri fjölskyldu og vinum og ég bara treysti mér ekki í það verk. - Saoirse Ronan, að tala um þau hlutverk sem hún sér mest eftir að hafa misst af, en Peter Jackson vildi að hún léki eitt hlutverkið í The Hobbit: An Unexpected Journey. 8 Myndir mánaðarins Ég reyni að endurtaka mig ekki of mikið og vil í hverri mynd bjóða áhorfendum á staði sem þeir hafa aldrei komið til áður, og vissu jafnvel ekki að væru til. Og þá á ég ekki við landfræðilega staði heldur huglæga. En vissulega geri ég hlutina eftir mínu höfði í hvert sinn og vissulega hef ég minn stíl. - Wes Anderson. Að vera partur af góðri sögu og hjálpa til við að koma henni á framfæri við áhorfendur ... það er mín köllun. - Alden Ehrenreich. Það geggjaðasta sem ég hef gert? Það er áreiðanlega þegar ég fékk mikinn áhuga á manni sem ég kannaðist lítillega við og ákvað að sitja fyrir honum. Þóttist svo ekkert vita þegar hann birtist. En þetta fór vel. - Rachel McAdams.