Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins

Vatnsberinn 20 . jan . - 18 . feb .
Tvíburarnir 21 . maí - 21 . júní
Vogin 23 . sept . - 23 . okt .
Þú skellir þér í heimsókn til nýju nágrannanna og reynir að fá þá til að lána þér bílinn um næstu helgi svo þú getir heimsótt frænku þína í Stykkishólmi áður en hún flytur .
Þótt fólk í tvíburamerkinu þyki yfirleitt ekki stíga í vitið kemur það þó fyrir að því dettur í hug eitthvað snjallt og gáfulegt . Þetta mun þó ekki gerast núna í september .
Taktu þér frí í næstu viku og farðu út að leita að kanínum . Hver veit nema þú finnir nokkrar og að það verði upphafið að betra gengi í ástarlífinu ? Þú kaupir þér stultur .
Fiskarnir 19 . feb . - 20 . mars Þér hættir til að segja eitthvað afar heimskulegt en á því verður breyting í september þegar þú segir eitthvað óvenju gáfulegt . Þú hittir þrjá jakuxa , þar af einn sem heitir Jón .
Hrúturinn 21 . mars - 19 . apríl
September verður ákaflega rólegur mánuður fyrir hrúta , sérstaklega þá sem hafa nýlega eignast dráttarvél . Notaðu tækifærið og reyndu að finna lyklana sem Mummi týndi .
Nautið 20 . apríl - 20 . maí
Sér grefur gröf segir máltækið en þú hefur aldrei skilið nákvæmlega hvað átt er við með því og gerir því hverja vitleysuna á fætur annarri . Þú eignast brúnan yfirfrakka .
Krabbinn 22 . júní - 22 . júlí Þér hættir til að ofmeta sjálfa ( n ) þig við aðstæður sem þú ræður engan veginn við og það er nákvæmlega út af því sem þú ættir að ráða þig á rússneskan rækjubát .
Ljónið 23 . júlí - 22 . ágúst
Nú er ekki rétti tíminn til að fjárfesta , sérstaklega ekki fyrir fólk eins og þig sem hefur ekkert vit á peningum . Mundu að það er mikið járn í lifrarpylsum og járnrörum .
Meyjan 23 . ágúst - 22 . sept .
Þú glímir við óvenjumikla og mjög vonda andremmu þessa dagana sem myndi lagast ef þú færir oftar út að hlaupa . Reyndu að taka ekki öllu svona svakalega alvarlega .
Sporðdrekinn 24 . okt . - 21 . nóv . Þú missir gersamlega stjórn á þér næsta miðvikudag þegar þú uppgötvar að svarið við mjög dularfullri gátu er búið að vera fyrir framan nefið á þér í allt sumar .
Bogmaðurinn 22 . nóv . - 21 . des .
Þú ákveður að fara til Andamaneyja og komast að því í eitt skipti fyrir öll hvað þetta lið sem á heima þar er eiginlega að gera allan daginn . Mundu eftir hatti og sólarolíunni .
Steingeitin 22 . des . - 19 . jan .
Þér verður boðið í afmæli í september og ákveður að gefa afmælisbarninu eitthvað sem kemur sér vel í framtíðinni eins og t . d . jólakúlur eða tvo pakka af heftivír .

Afmælisbörn mánaðarins

1 . sept .: Zendaya , 22 ára
2 . sept .: Keanu Reeves , 54 ára
3 . sept .: Charlie Sheen , 53 ára
4 . sept .: Beyonce Knowles , 37 ára
5 . sept .: Michael Keaton , 67 ára
6 . sept .: Idris Elba , 46 árs
8 . sept .: Martin Freeman , 47 ára
9 . sept .: Adam Sandler , 52 ára
10 . sept .: Colin Firth , 58 ára
11 . sept .: Brian De Palma , 78 ára
15 . sept .: Tom Hardy , 41 árs
16 . sept .: Amy Poehler , 47 ára
18 . sept .: Jason Sudeikis , 43 ára
20 . sept .: Sophia Loren , 84 ára
21 . sept .: Bill Murray , 68 ára
25 . sept .: Will Smith , 50 ára
26 . sept .: Linda Hamilton , 62 ára 27 . sept .: Gwyneth Paltrow , 46 ára
28 . sept .: Naomi Watts , 50 ára 30 . sept .: Marion Cotillard , 43 ára
6 Myndir mánaðarins