Myndir mánaðarins September 2018 tbl. 296 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 32

Tölvuleikir Marvel’s Spider-Man Upplifðu Spider-Man sem aldrei fyrr. Líf Peters Parker er byrjað að rekast kröftuglega á við hitt sjálf hans sem Spider- Man og gerir hann allt sem hann getur til að reyna að halda jafnvægi á milli persónulegs lífs síns og þess að bjarga þúsundum íbúa New York borgar. Leikmenn fá hér einstakt tækifæri til að spila sem ein vinsælasta ofurhetja allra tíma og sveifla henni milli bygginga í New York í ótrúlega stórum og opnum heimi. Leikmenn sveifla sér einnig á milli verkefna og þurfa að sigra hin ýmsu illmenni. Leikurinn er gerður af Insomniac Games og hafa þeir lagt allt í að gera þennan leik að besta ofurhetjuleik allra tíma. Tegund: Hasarleikur Kemur út á: PS4 PEGI aldurstakmark: 16+ Útgáfudagur: 7. september Framleiðandi: Sony I. E. Útgefandi: Sena Leikurinn inniheldur, m.a.: Glænýjan söguþráð sem er pakkaður af þekktum persónum úr Spider-Man heiminum. l New York borg lifnar við í leiknum og geta leikmenn sveiflað sér um alla borgina og heim- sótt þekkta staði á Manhattan og þekkta staði úr Spider-Man heiminum. l Einstakt bardagakerfi þar sem leikmenn geta með einföldum hætti gengið endanlega frá óvinunum í leiknum. l 32 Myndir mánaðarins