Myndir mánaðarins September 2017 tbl. 284 bíóhluti | Page 14
Væntanleg í október – Thor: Ragnarök
Líður Ásgarður undir lok?
Aðdáendur Avengers-myndanna eiga von á góðu þann 27.
október þegar Thor: Ragnarök kemur í bíó en hún verður frum-
sýnd hér á landi viku áður en í Bandaríkjunum þar sem frumsýn-
ingardagurinn er 3. nóvember. Í þetta sinn þurfa Þór og félagar
hans að takast á við hina illu en máttugu Hel sem Óðinn kastaði
niður í Niflheim þegar hún fæddist. Hún er nú komin aftur til
baka staðráðin í að leggja Ásgarð í eyði og um leið losa sig við
alla sína bræður og systur ásamt mannkyninu í heild. Það mun
reyna verulega á Þór og þá sem með honum standa í baráttunni
því ef hún tapast er úti um þau öll að eilífu og Ásgarð líka.
Chris Hemsworth leikur Þór á ný en sagan í myndinni er
sögð mikilvægur undanfari næstu Avenger-myndar.
14
Það er Cate Blanchett sem leikur hina máttugu og illu Hel
og Karl Urban leikur hennar helsta bandamann, Skurge. Það mun mæða mest á þeim Hulk, Þór, nýliðanum Val-
kyrju og Loka í baráttunni við Hel og allt hennar hyski.
Þótt þeir bræður Loki og Þór séu öflugir einir sér hafa þeir ekkert á
móti því að nota öflugar byssur til að sigrast á óvinum Ásgarðs. Fenrisúlfurinn, sem er jötunn í álögum og sonur Loka í
goðafræðinni, kemur við sögu og tekst m.a. á við Hulk.
Myndir mánaðarins