Myndir mánaðarins Október 2018 tbl. 297 Bíóhluti | Page 15
Væntanlegt í nóvember
Nýjasta mynd Óskarsverðlaunaleikstjórans Steves McQueen,
Widows, var frumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 9. sept-
ember og hefur hlotið frábæra dóma þeirra sem séð hafa. Myndin
sækir innblásturinn í samnefnda og mjög vinsæla sakamálaþætti
sem sýndir voru í bresku sjónvarpi á áttunda áratuginum og
segir frá nokkrum konum sem missa eiginmenn sína eftir að þeir
fremja bíræfið rán sem fer úrskeiðis. Í fyrstu vita konurnar vart sitt
rjúkandi ráð en svo kemur upp sú hugmynd að þær ljúki við ránið
sem eiginmenn þeirra voru að reyna að fremja þegar þeir féllu.
Með hlutverk kvennanna fara þær Viola Davis, Michelle Rodriguez,
Elizabeth Debicki og Cynthia Erivo en í öðrum stórum hlutverkum
eru m.a. Colin Farrell, Liam Neeson, Daniel Kaluuya, Jacki Weaver,
Carrie Coon, Robert Duvall, Jon Bernthal og Lukas Haas, eða með
öðrum orðum pottþéttur leikhópur sem kann sitt fag.
Ekkjurnar ákveða að í staðinn fyrir að setjast niður og gefast
upp þurfi þær að sýna hvað í þeim býr í eitt skipti fyrir öll.
Teiknimyndin Wreck-It Ralph sem Disney sendi frá sér árið 2012
hefur æ síðan notið mikilla vinsælda en hún sagði frá leikjapers-
ónunni Ralph sem var orðinn dauðleiður á að vera alltaf vondi
kallinn í leiknum og langaði að prófa eitthvað nýtt. Það tókst
honum að lokum og í þessari framhaldsmynd, sem sögð er slá þá
fyrri út í húmor og gæðum, lendir hann í nýjum ævintýrum þegar
hann og besta vinkona hans, Vanellope, uppgötva að í gegnum Wi
Fi-beini, eða router, geta þau ferðast eins og þau vilja út í óravíddir
internetsins. Þeirri tilbreytingu taka þau fegins hendi og vita auð-
vitað ekki að það er auðveldara að fara út en að komast heim aftur.
Tvær fyrsta flokks stiklur hafa verið frumsýndar úr Ralph Breaks the
Internet og eru þær hvor annarri fyndnari, en að gerð myndarinnar
standa sömu aðilar og gerðu hina vinsælu teiknimynd Zootropolis
árið 2016. Ralph Breaks the Internet verður frumsýnd 30. nóvember.
Þau Ralph og Vanellope lenda í kostulegum ævintýrum þegar
þau finna leið til að ferðast um internetið alveg eins og þau vilja.
Myndir mánaðarins
15