Myndir mánaðarins Október 2018 tbl. 297 BR-DVD-VOD-Tölvuleikir | Page 6
Stjörnuspá mánaðarins
Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt.
Það verður mjög lítið við að vera
hjá þér í október og sennilega eyð-
irðu mánuðinum bara í að horfa út
um gluggann á grámyglu hvers-
dagsins. Láttu þér ekki verða kalt. Einhver sem þú hittir í fyrra og
talaðir lítillega við kaupir sér nýjan
bíl þann fimmtánda, sennilega
Skoda. Fleira merkilegt mun ekki
gerast hjá þér á næstunni. Þú hefur aldrei verið góð(ur) í að
ráða gátur og það á ekki eftir að
breytast í október. Fjárfestu í
skemmtilegu leikjabókinni og
fáðu einhvern með þér í reiptog.
Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Krabbinn 22. júní - 22. júlí Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv.
Einhver er að hugsa um að kaupa
litríka peysu handa þér í jólagjöf
en hættir við þegar hann sér hvað
hún kostar og ákveður frekar að
gefa þér ísskeið. Sýndu þakklæti. Heppnin verður loksins með þér í
október þegar þú finnur plastpoka
með bláberjum. Taktu þér tak og
ákveddu að byrja alla daga héðan í
frá á a.m.k. fimmtíu armbeygjum. Nú þegar vetur konungur er á
næsta leiti þarftu eins og áður að
kaupa þér ný kerti í bílinn og
rúðupiss sem frýs ekki fyrr en við
17 gráður. Gerðu þetta í fyrramálið.
Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des.
Nú þegar Júpíter nálgast sporð-
drekamerkið líður þér eins og
eitthvað sé að vaxa innan í þér og
muni að lokum brjótast út og
valda mikilli hræðslu í hverfinu. Nú er rétti tíminn til að fjárfesta,
sérstaklega fyrir fólk eins og þig
sem hefur ekkert vit á peningum.
Ekki gleyma að það er mikið járn í
lifrarpylsum og járnrörum. Það er farið að styttast í jólin og
því ráðleggja stjörnurnar þér að
fara strax í að skrifa niður allt sem
þú þarft að gera svo þú gleymir
engu eins og í fyrra og hitteðfyrra.
Nautið 20. apríl - 20. maí Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Steingeitin 22. des. - 19. jan.
Fólk í nautsmerkinu sem hefur
ekki fest ráð sitt mun samkvæmt
stjörnunum gera tilraun til þess
þann tíunda. Reyndu að vera ekki
alltaf svona svakalega fýluleg(ur). Þú ert eitthvað orkulaus þessa dag-
ana og því mæla stjörnurnar með
að þú fáir þér dálítið bensín að
drekka. Ekki samt alvöru bensín,
þær eru alls ekki að meina það. Það verður allt brjálað að gera hjá
þér fram eftir mánuðinum og því
ættir þú að huga að því að sleppa,
eða a.m.k. að fresta þessari utan-
landsferð sem þú varst að plana.
Fróðleikur mánaðarins
Þeir Benicio Del Toro og James Brolin, sem
leika saman í Sicario: Day of the Soldado,
hafa í raun verið vi