Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 8

Gullkorn Ég hef verið afar heppinn og leikið t.d. á móti fallegustu leikurum í heimi eins og Kate Winslet, Cate Blanchett, Sölmu Hayek og Goldie Hawn. En sá allra fallegasti er Johnny Depp. - Geoffrey Rush. Ég var algjörlega heilluð af Arnold Schwarzenegger þegar ég var lítil, fannst hann bara sá allra besti, finnst það enn og hef séð allar myndir hans, sumar mörgum sinnum eins og The Terminator sem er uppáhaldsmyndin mín. Þess vegna líka heitir hundurinn minn Arnie. - Kaya Scodelario. Við Kurt höfðum bæði reynslu af hjónabandi, ég meira að segja af tveimur. Við vissum því að hjónaband myndi ekki gera neitt fyrir okkur. Svo kom í ljós að það var miklu skemmtilegra að vera kærustupar en hjón. - Goldie Hawn, en hún og Kurt Russell hafa verið kærustupar í 45 ár. Ég gleymi aldrei deginum þegar ég uppgötvaði að ég myndi aldrei verða Ford-módel. - Amy Schumer. 8 Myndir mánaðarins Fólk sem kemst í mína stöðu hefur yfir engu að kvarta og á ekki að kvarta. Það væri skammarlegt af mér að kvarta. Þú munt aldrei heyra mig kvarta. - Chris Pine, spurður hvað honum þætti verst við frægðina. Madonna leikstýrði sjálf dansatrið- unum og samdi flesta dansana. Hún kenndi okkur að á bak við hverja einustu hreyfingu væri tilgangur og meining og setti allt upp eins og um leikrit væri að ræða. Þess vegna fannst mér ég ekki síður vera leikkona en dansari þegar ég starfaði með henni. - Sofia Boutella. Ég hef leikið margar furðulegar mannverur í gegnum árin og haft gaman af, en trúðu mér að ég hef ekki haft mikinn áhuga á að kynnast sumum þeirra meira og betur en ég þurfti. - Ty Burrell. Nei, nú er ég hætt. - Scarlett Johansson, sem skildi formlega við eiginmann sinn, Romain Dauriac, 17. september sl. Ég hugsa oft til baka eins og aðrir og á bæði góðar og slæmar minningar. Ein af þeim verstu er hversu leiðinlegur ég var við David Lynch þegar við gerðum Fílamanninn. Ég skrifaði honum bréf nokkrum árum síðar og baðst afsökunar á framkomu minni. - Anthony Hopkins. Ég hef aldrei hitt leikara sem lang- aði ekki til að vera leikari. Þetta er bara innbyggð þörf, jafnvel þörf fyrir að láta sér líða vel því leikurum líður hvergi betur en á sviðinu. - Stanley Tucci. Ég var feitasta barnið í Clarke- sýslu. Það kom mynd af mér í bæjarblaðinu því ég leit út eins og verðlaunanæpa. - Billy Bob Thornton, sem fæddist í bænum Hot Springs í Arkansas. Ég þurfti nú ekki annað en að líta á meðleikarana, Kevin Spacey, Jamie Foxx, John Hamm ... heyrðu, réttu mér pennann. - Ansel Elgort