Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins Stjörnuspá mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Það verður einhver hristingur í kringum þig fram eftir mánuðin- um, sennilega kosningaskjálfti. Taktu tvær verkjatöflur ef einkenn- in hverfa ekki fyrir tuttugasta. Það bendir allt til að þú hafir ný- lega keypt þér flugmiða eða munir kaupa þér flugmiða á næstunni eða kaupir að minnsta kosti eitt- hvað dót fljótlega sem byrjar á effi. Þú ert í óvenjugóðu jafnvægi þessa dagana og kippir þér ekki upp við að gamalt hælsæri taki sig upp enda er það í hælnum á einhverjum öðrum. Borðaðu meira af silungi. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Krabbinn 22. júní - 22. júlí Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Þér hættir til að finna upp hjólið annað slagið sem bendir til að þú hafir lítið fylgst með í skólanum. Settu upp valdsmannssvipinn um helgina og taktu öll mál að þér. Aldrei þessu vant eru engin ferða- lög framundan hjá þér og þá erum við ekki að telja með þennan skot- túr niður á strönd. Mundu að gefa litbrigðum Litlafells góðan gaum. Þú ferð í síðbúna lautarferð í mán- uðinum og finnur sexhundruðkall á leiðinni heim aftur. Notaðu hann í hárlengingar og afganginn í handbók um rabarbararæktun. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Það er eitthvað eiturgrænt, beiskt og slímugt í kortunum þínum á næstunni. Helltu þér yfir einhvern með miklum þjósti en vertu með vasaklút ef þú skyldir froðufella. Svalaðu forvitninni og flettu því upp á netinu hvar Angmagssalik er í raun og veru. Gáðu í leiðinni hvort þú finnir ekki einhvern stað sem þú getur farið til um jólin. Þú íhugar að fara snemma af stað í ár og kaupa jólagjafir svo þú lendir ekki aftur í tímahraki og með allt niðrum þig á Þorláksmessu. Frest- aðu þessu a.m.k. fram í nóvember. Nautið 20. apríl - 20. maí Meyjan