Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 38

Tölvuleikir Assassin’s Creed Origins Uppgötvaðu uppruna þinn Tíundi leikurinn í Assassin’s Creed-seríunni kemur út 27. október og býður núverandi og nýjum aðdáendum upp á nýja reynslu sem er ólík öllum öðrum ævintýraleikjaupplifunum hingað til. Tvö ár eru liðin síðan síðasti leikur, Syndicate, kom út og hafa hönnuðir seríunnar notað tímann í glæsilegar uppfærslur sem eiga ekki bara eftir að koma á óvart heldur dýpka til muna reynslu leikmanna af ævintýraheimum Assassin’s Creed. Í þetta sinn gerist leikurinn í Egyptalandi hinu forna og á meðal þekktra sögu- persóna sem leikmenn hitta sem frelsishetjan Bayek eru Ptolemajos faraó og systir hans Kleópatra ásamt Julíusi Caesar svo einhverjar séu nefndar af mörgum. Leikurinn inniheldur glænýtt bardagakerfi, stórkostlega veröld forn- Egyptalands og nýtt gr unnverkefni: Að komast að uppruna Bræðralagsins. Sigldu niður Níl og kafaðu, kannaðu píramídana og uppgötvaðu leyndardóma þeirra. Skoraðu óvini og alls konar skepnur á hólm og vertu klár í slaginn þegar óvæntir hlutir gerast. Lærðu að berjast á nýjan hátt, steldu verðmætum og opnaðu með þeim aðgang að vopnum og græjum til að leysa fjölbreytt verkefnin – eða kannaðu hina risastóru opnu veröld upp á eign spýtur. Þú átt leikinn! Tegund: Ævintýraleikur Kemur út á: PS4 og Xbox One PEGI aldurstakmark: 18+ Útgáfudagur: 27. október Framleiðandi: Ubisoft Útgefandi: Myndform 38 Myndir mánaðarins