Myndir mánaðarins Október 2017 tbl. 285 DVD-VOD-BR-Tölvuleikir | Page 37
Tölvuleikir
Gran Turismo Sport
Gran Turismo Sport er framtíðin í akstursíþróttum, en nýjasti
leikurinn í þessari margverðlaunuðu seríu kemur út fyrir Play-
Station 4 18. október.
Hér fá leikmenn einstakan aðgang að hröðustu og mest spennandi ökutækjum
sem til eru í veröldinni og fá að upplifa spennuna sem fylgir því að keyra hratt
án nokkurra takmarkana. Leikmenn geta spilað einir og sér, með vinum eða
með öllum heiminum í fullkominni netspilun.
Keppnin í Gran Turismo Sport er svo flott og raunveruleg að hún er viðurkennd
af aksturssamtökum FIA.
Tegund: Bílaleikur
Kemur út á: PS4
PEGI aldurstakmark: 3+
Útgáfudagur: 18. október
Framl.: Sony Interactive Entertainment
Útgefandi: Sena
Leikurinn inniheldur, m.a.:
Fjölbreytta bíla: Í Gran Turismo Sport eru
137 mismunandi bílar af öllum stærðum og
gerðum, þeir eftirsóttustu, þeir hröðustu og
sumir sem eru enn á teikniborðinu.
l
Netspilun vottuð af FIA: Í fyrsta skipti í
bílaleik er sérstök meistarakeppni á netinu
sem vottuð er af samtökum FIA.
l
Virkni með PlayStation VR: Upplifðu hvern-
ig er að stíga inn í heitustu bíla heimsins með
því að setja á þig PlayStation VR.
l
Myndir mánaðarins
37