Myndir mánaðarins Nóvember 2018 tbl. 298 Bíómyndir | Page 29
Creed II
Barist til síðasta dropa
Hinn nýkrýndi heimsmeistari í léttþungavigt í hnefaleikum,
Adonis Creed, snýr aftur í hringinn, þvert á ráðleggingar
Rockys Balboa, þegar hinn rússneski Viktor Drago skorar á
hann, en Viktor er sonur Ivans Drago sem sigraði föður Adonis,
Apollo Creed, fyrir rúmum 30 árum og banaði honum um leið.
Creed II er, eins og allir sem fylgjast með kvikmyndum vita og heitið
ber með sér, framhald gæðamyndarinnar Creed sem var frumsýnd
2015 og hlaut fjölda verðlauna, þ. á m. Golden Globe-verðlaunin
fyrir leik Sylvesters Stallone í hlutverki Rocky Balboa, 40 árum eftir
að hann lék hann fyrst í Óskarsverðlaunamyndinni Rocky. Um leið
er Creed II í raun áttunda myndin í Rocky-kvikmyndaseríunni.
Í þetta sinn snýr gamall andstæðingur Rockys til baka, hinn rúss-
neski Ivan Drago (Dolph Lundgren) sem Rocky hafði tekist að sigra
eftir að hann hafði orðið vini Rockys og fyrrverandi heimsmeistara,
Apollo Creed, að bana í hringnum. Með í för er sonur Ivans, Viktor
Drago, sem hefur skorað á Adonis Creed, son Apollos, í bardaga, og
er bersýnilega staðráðinn í að ganga frá honum í eitt skipti fyrir öll ...
Creed II
Drama / Hnefaleikar
Aldurstakmark og lengd ekki fyrirliggjandi fyrir prentun.
Aðalhlutverk: Michael B. Jordan, Sylvester Stallone, Tessa Thompson,
Dolph Lundgren, Florian Munteanu, Phylicia Rashad og Milo Ventimi-
glia Leikstjórn: Steven Caple Jr. Bíó: Sambíóin Álfabakka, Egilshöll,
Kringlunni, Akureyri og Keflavík, Laugarásbíó, Ísafjarðarbíó, Bíóhúsið
Selfossi, Eyjabíó, Króksbíó og Skjaldborgarbíó
Frumsýnd 30. nóvember
Michael B. Jordan snýr aftur sem heimsmeistarinn í léttþunga-
vigt, Adonis Creed, sem nú ætlar að berjast við sinn erfiðasta
andstæðing til þessa, hinn ofursterka og ósigraða Viktor Drago.
Punktar ....................................................
Leikstjóri myndarinnar er Steven Caple Jr. sem fyrir utan nokkrar
verðlaunastuttmyndir á að baki bíómyndina The Land sem m.a
hlaut Black Reel-kvikmyndaverðlaunin í fyrra fyrir handrit Stevens.
l
Ryan Coogler, sem leikstýrði fyrri Creed-myndinni, snýr aftur sem
framleiðandi þessarar myndar og skrifaði einnig handritið ásamt
Sylvester Stallone og Juel Taylor.
l
Andstæðingur Adonis í þetta sinn er tröllið Viktor Drago, sonur Ivans
Drago, en hann er leikinn af hnefaleikamanninum Florian Munteanu.
Veistu svarið?
Creed II gerist 33 árum eftir að þeir Apollo
Creed, faðir Adonis, og Ivan Drago, faðir Viktors,
börðust í hringnum með þeim afleiðingum að
Apollo lét lífið. En í hvaða mynd gerðist það?
Rocky Balboa, sem Sylvester Stallone leikur hér á ný, gerir að sjálf-
sögðu sitt besta í að undirbúa Adonis undir bardagann mikla.
Rocky IV.
Myndir mánaðarins
29