Myndir mánaðarins MM Ágúst 2019 Bíóhluti | Page 18
A Dog’s Journey
Vináttan er eilíf
A Dog’s Journey er ný mynd um hundinn Bailey sem við kynnt-
umst í myndinni A Dog’s Purpose, en hún var frumsýnd árið
2017 og bræddi hjörtu margra, ekki síst hunda- og dýravina.
A Dog's Journey var byggð á samnefndri metsölu- og verðlaunabók
bandaríska rithöfundarins Williams Bruce Cameron sem kom út
2010 og sat í 19 vikur á metsölulista New York Times. Framhaldið, A
Dog’s Journey sem þessi mynd er gerð eftir, kom svo út 2012 og gerist
um ári eftir að fyrri sögunni lauk. Við förum hér aftur í heimsókn
til Ethans, eiganda Baileys, og eiginkonu hans, Hönnu, sem nú
búa með ekkju sonar síns, Gloriu, og dóttur hennar, Kathryn. Ólíkt
tengdaforeldrum sínum og dóttur er Gloriu ekki vel við hunda og
ákveður að flytja burt, þeim Ethan og Hönnu til mikillar mæðu og
ekki bætir úr skák að Gloria lætur í veðri vaka að þau muni ekki fá að
hitta Kathryn á ný. Þegar Bailey veikist af ólæknandi sjúkdómi biður
Ethan hann um að koma aftur í öðrum hundalíkama eins og hann
hefur alltaf gert, en í þetta sinn til að passa Kathryn í uppvextinum.
Við því á Bailey eftir að verða og þar með hefst ævintýrið á ný með
öllum þeim húmor og hlýju sem fylgir sambandi manna og hunda ...
A Dog’s Journey
Gamandrama / Ævintýri
109
mín
Aðalhlutverk: Josh Gad, Dennis Quaid, Marg Helgenberger, Betty
Gilpin, Kathryn Prescott, Abby Ryder Fortson, Henry Lau, Johnny
Galecki og Jake Manley Leikstjórn: Gail Mancuso Bíó: Sambíóin
Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík, Bíóhúsið
Selfossi, Ísafjarðarbíó og Eyjabíó
Frumsýnd 30. ágúst
Veistu svarið?
Eins og fram kemur hér í kynningunni er þessi mynd
framhald myndarinnar A Dog’s Purpose sem var
frumsýnd fyrir rúmlega tveimur árum og gerði það
gott í kvikmyndahúsum enda ákaflega skemmtileg
og góð saga. Hver leikstýrði þeirri mynd?
Myndir mánaðarins
Punktar ....................................................
Rétt eins og í fyrri myndinni er það höfundurinn sjálfur, William
Bruce Cameron, sem skrifar handritið en í þetta sinn er það Gail
Mancuso sem leikstýrir en hún á langan feril að baki sem leikstjóri
sjónvarpsþátta og leikstýrði m.a. mörgum þáttum af Friends, Ellen,
Becker, Gilmore Girls, Scrubs, 30 Rock og Modern Family.
l
Myndin spannar öll uppvaxtarár CJ, barnabarns Ethans og Hönnuh, og
er leikin af Kathryn Prescott á unglingsárunum. Hún er hér með Henry
Lau sem leikur tilvonandi kærasta hennar og síðar eiginmann, Trent.
Lasse Hallström.
18
Dennis Quaid og Marg Helgenberger leika hjónin Ethan og Hönnuh.