Myndir mánaðarins MM September 2019 Bíóhluti | Page 31
Ad Astra
Leitin að svörunum
Geimfarinn Roy McBride ferðast út að ystu mörkum sólkerfis-
ins í leit að föður sínum sem hvarf í samskonar ferð nokkrum
árum fyrr en gæti samt enn verið á lífi. Um leið reynir Roy að
leysa ógnvekjandi gátu sem snertir framtíð alls lífs á Jörðu.
Það bíða sjálfsagt margir eftir að sjá og upplifa þessa vísindaskáld-
sögu leikstjórans og handritshöfundarins James Gray, en hann hefur
sjálfur lýst sögunni sem blöndu af Apocalypse Now og 2001: A Space
Odyssey. Það ætti að segja kvikmyndaáhugafólki ýmislegt en ekki
of mikið enda hefur áhersla í kynningarefni myndarinnar verið lögð
á að gefa helst ekki meiri upplýsingar um söguna en kemur fram í
inngangstextanum hér fyrir ofan. Það er auðvitað bara jákvætt enda
alltaf skemmtilegast þegar sögur koma manni á óvart og þar sem
James Gray er þekktur fyrir sín vönduðu vinnubrögð má ætla að Ad
Astra eigi eftir að gera það gott hjá aðdáendum vísindaskáldsagna.
Ad Astra
Vísindaskáldsaga
Brad Pitt leikur geimfarann Roy McBride sem ferðast út í ystu mörk
sólkerfisins eins og faðir hans hafði gert en síðan horfið sporlaust.
Aldurstakmark ekki fyrirliggjandi fyrir prentun
124
mín
Aðalhlutverk: Brad Pitt, Liv Tyler, Tommy Lee Jones, Ruth Negga,
Donald Sutherland, Anne McDaniels, John Ortiz, Loren Dean,
Kimberly Elise og Lisa Gay Hamilton Leikstjórn: James Gray Bíó:
Smárabíó, Háskólabíó, Sambíóin Egilshöll og Álfabakka, Borgarbíó
Akureyri, Selfossbíó, Ísafjarðarbíó og Króksbíó
Frumsýnd 27. september
Punktar ....................................................
Leikstjóri og handritshöfundur myndarinnar, James Gray, á að
baki margar gæðamyndir eins og Little Odessa, The Yards, We Own the
l
Night, Two Lovers, The Immigrant og The Lost City of Z. Hann og Brad Pitt
hafa verið góðir vinir lengi og upphaflega stóð til að Brad myndi fara
með aðalhlutverkið í síðastnefndu myndinni, The Lost City of Z, en af því
varð ekki vegna annarra skuldbindinga og Charlie Hunnam kom í hans
stað. Brad var hins vegar einn af framleiðendum þeirrar myndar.
l
Veistu svarið?
Þeir Tommy Lee Jones og Donald Sutherland leika
veigamikil aukahlutverk í Ad Astra og er þetta í
þriðja sinn sem þeir leika í sömu myndinni. Sú
fyrsta var JFK eftir Oliver Stone árið 1991 og önnur
var Space Cowboys árið 2000. Hver leikstýrði henni?
Heiti myndarinnar, Ad Astra, er latneska og þýðir „til stjarnanna“.
Leikstjóri Ad Astra, James Gray, hefur sagt í viðtölum að myndin inni-
haldi raunverulegustu geimferðasenur sem festar hafa verið á filmu.
Clint Eastwood.
Myndir mánaðarins
31