Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 VOD og tölvuleikir | Page 6

Stjörnuspá mánaðarins Vatnsberinn 20. jan. - 18. feb. Tvíburarnir 21. maí - 21. júní Vogin 23. sept. - 23. okt. Erfiðleikar þínir varðandi samskipti við nágrannann fara versnandi og það þýðir ekki lengur að mæta því með hauspoka. Íhugaðu að fá þér inniloftnet áður en það er of seint. Ákvörðun þín um að fjárfesta í bjúgverpli kemur þér í koll um mánaðamótin þegar þú færð hann í bakið. Fáðu þér nýjar perur í loft- ljósin og sjáðu allt í nýju ljósi. Þú rambar í ógáti inn á góðgerðar- samkomu vélsleðasamtakanna og vinnur þar farmiða fyrir tvo til Frankfurt að verðmæti hundrað tuttugu og níu þúsund. Ekki fara. Fiskarnir 19. feb. - 20. mars Krabbinn 22. júní - 22. júlí Sporðdrekinn 24. okt. - 21. nóv. Það er allt í lagi að láta sig dreyma en maður þarf samt að passa sig þegar maður er til dæmis úti að labba að labba ekki á ljósastaur. Haltu þig í fjarlægð frá eldavélum. Hjólbeinótt fólk sem fætt er í krabbanum og þjáist af minnisleysi mun taka ranga beygju um miðjan mánuðinn og enda úti á Langanesi. Fjárfestu í nesti og nýjum skóm. Ekki láta hugann reika því það er ekki tryggt að hann komi aftur fyrr en í næsta mánuði. Gerðu eitthvað nýtt til tilbreytingar, eins og t.d. að fara og skoða strámottur og kústa. Hrúturinn 21. mars - 19. apríl Ljónið 23. júlí - 22. ágúst Bogmaðurinn 22. nóv. - 21. des. Gerðu eitthvað í þínum málum því annars er hætta á því að þú verðir eins og þú ert áfram og það viltu auðvitað ekki. Þú hlærð upphátt að eldri konu sem dettur í hálkunni. Það er mikil rómantík í loftinu hjá þér þessa dagana sem hverfur um leið og þú þværð þér með nýja flösusjampóinu. Mundu að bursta jaxlana vinstra megin frá þér séð. Strandferð sem þú ferð í á næst- unni á eftir að borga sig vel þegar þú hittir nokkrar nánasir og færð gefins hjá þeim nautasamlokur. Þú hleypur í spik upp úr tuttugasta. Nautið 20. apríl - 20. maí Meyjan 23. ágúst - 22. sept. Steingeitin 22. des. - 19. jan. Allt sem hefur ekki verið að ganga upp hjá þér undanfarna mánuði mun heldur ekki ganga upp hjá þér núna í nóvember. Sættu þig við það og brostu bara í kampinn. Nóvember verður heilladrjúgur í meira lagi hjá meyjunum í ár og því muntu brosa út að eyrum frá morgni til kvölds þangað til allt fer aftur í steik. Skelltu þér á mótmæli. Þú stendur frammi fyrir erfiðum valkostum þegar þér er boðið að kaupa sultu sem er komin vel fram yfir síðasta söludag. Stattu á þínu og mundu að sulta er bara sulta. Afmælisbörn mánaðarins 6 1. nóv.: Tony Collette, 47 ára 2. nóv.: David Schwimmer, 53 ára 3. nóv.: Dolph Lundgren, 62 ára 5. nóv.: Tilda Swinton, 59 ára 5. nóv.: Sam Rockwell, 51 árs 6. nóv.: Emma Stone, 31 árs 11. nóv.: Leonardo DiCaprio, 45 ára 12. nóv.: Ryan Gosling, 39 ára 13. nóv.: Gerard Butler, 50 ára 15. nóv.: Shailene Woodley, 28 ára 17. nóv.: Martin Scorsese, 77 ára 18. nóv.: Owen Wilson, 51 árs 19. nóv.: Jodie Foster, 57 ára 21. nóv.: Goldie Hawn, 74 ára 22. nóv.: Scarlett Johansson, 35 ára 22. nóv.: Mark Ruffalo, 52 ára 22. nóv.: Terry Gilliam, 79 ára 25. nóv.: Joel Kinnaman, 40 ára 28. nóv.: Ed Harris, 69 ára 30. nóv.: Ben Stiller, 54 ára Myndir mánaðarins