Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 VOD og tölvuleikir | Page 33
Tölvuleikir
Star Wars Jedi: Fallen Order
Star Wars Jedi: Fallen Order er þriðju persónu hasar- og ævintýra-
leikur frá Respawn Entertainment sem er keyrður áfram af glænýjum
og æsispennandi söguþræði og er hann gerður fyrir einn spilara.
Leikmenn fara í hlutverk Jedi-lærlings sem rétt slapp við að vera tekinn
af lífi eftir að skipun 66 var gefin eftir atburðina í Episode 3: Revenge of Sith.
Markmiðið er að byggja upp Jedi-regluna aftur og þurfa leikmenn að púsla
saman alls konar brotum úr fortíðinni til að geta klárað þjálfun sína, þróað með
sér nýja og öfluga krafta og náð að sveifla geislasverðinu en á sama tíma verið
a.m.k. einu skrefi á undan keisaraveldinu og illum útsendurum þess.
Leikurinn inniheldur ótrúlega flotta bardaga þar sem leikmenn þurfa að nota
geislasverðið til að ná yfirhöndinni. Hasaratriði leiksins eru gríðarlega vel gerð
og fá leikmenn oft þá tilfinningu að þeir séu hreint og beint staddir í Star Wars-
mynd. Beita þarf mikilli herkænsku í bardögum, meta styrkleika og veikleika
óvinanna og nota til góðs alla þá Jedi-þjálfun sem hægt er að fá í leiknum.
Aðdáendur Star Wars munu þekkja marga staði leiksins sem hafa komið fyrir
í Star Wars-myndunum, svo og vopn leiksins, græjur og óvini. Auk þessa inni-
heldur leikurinn fjölmargar nýjar persónur, staði, kvikindi, vélmenni o.m.fl.
Tegund: Hasar- og ævintýraleikur
Kemur út á: PS4
PEGI aldurstakmark: 16+
Útgáfudagur: 15. nóvember
Framleiðandi: EA Games
Útgefandi: Sena
Leikurinn inniheldur:
u Nýtt bardagakerfi sem sækir innblásturinn
í Star Wars-myndirnar. Hér fá þeir sem hefur
alltaf langað til að verða alvöru Jedi-riddarar
drauma sína uppfyllta. Bardagar leiksins eru
stórskemtileg blanda af hæfni með geisla-
sverðið og hversu góðir leikmenn eru að nota
kraftana. Bardagakerfið er einfalt í notkun, en
það tekur tíma að verða góður í því.
u Glænýjan söguþráð þar sem leikmenn
verða að byrja á því að ljúka Jedi-þjálfun sinni
og finna svo út úr því hvernig best er að ná að
byggja Jedi-regluna upp að nýju. Leikmenn
þurfa að berjast, fara um spennandi svæði og
leysa alls konar þrautir til að klára leikinn.
u Fjölbreytt umhverfi, skóglendi, kletta og
margt fleira. Umhverfi leiksins er mjög opið
og það er í valdi leikmanna hvert skal haldið
hverju sinni. Eftir því sem kraftar leikmanna
aukast er meira sem þeir geta gert til að hafa
áhrif á umhverfið, opnað um leið fyrir nýjar
leiðir og uppgötvað mikilvæg leyndarmál.
Myndir mánaðarins
33