Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 Bíóhluti | Page 6
Bíófréttir – Væntanlegt
Um leið og myndin Joker var frumsýnd og sló í gegn byrjuðu
ferðamenn að flykkjast í Bronx-hverfið í New York til að sjá
tröppurnar þar sem Jókerinn dansaði svo eftirminnilega.
Sjáumst í bíó!
Þegar þetta blað kemur út í lok október er tiltölulega nýbúið að
frumsýna þrjár síðustu myndirnar á dagskrá mánaðarins, þ.e.
danska snilldardramað Dronningen, teiknimyndina um Addams-
fjölskylduna furðulegu og svo Zombieland: Double Tap sem
allt bendir til að eigi eftir að njóta mikilla vinsælda enda þykir
hún fantagóð, fyndin og skemmtileg. Hvort hún slái samt út
myndirnar Maleficent og Joker í aðsókn skal ósagt látið en þær eru
þegar þetta er skrifað aðsóknarmestu myndir októbermánaðar.
Þess má geta til gamans að vinsældir Joker hafa orðið til þess að
ferðamenn eru nú teknir að flykkjast á tökustaði myndarinnar í
New York, sér í lagi til að skoða tröppurnar þar sem Arthur Fleck
dansaði svo eftirminnilega í gervi Jókersins. Bætast þær 134 tröpp-
ur í Bronx-hverfinu nú við fjölmarga aðra fjölfarna staði í New York
sem kvikmyndaáhugafólk hefur gaman af að heimsækja eftir að
hafa séð þá notaða í hinum ýmsu bíómyndum í gegnum árin.
Charlize Theron, Nicole Kidman og Margot Robbie leika aðal-
hlutverkin í Bombshell, nýjustu mynd leikstjórans Jays Roach.
Sprengjan sem sprakk
Bombshell er nýjasta mynd Jays Roach
(Austin Powers-myndirnar, Meet the Par-
ents, Dinner for Schmucks, The Campaign,
Trumbo) og er gerð eftir handriti Óskars-
verðlaunahafans Charles Randolph (The
Big Short). Hún fjallar um þá sprengju
sem sprakk þegar Gretchen Carlson, fyrr-
verandi fréttaþulur hjá Fox News kærði
stjórnarformann fyrirtækisins, Roger Ailes,
fyrir kynferðisáreiti árið 2016 og sagðist
hafa verið rekin úr starfi vegna þess að
hún vildi ekki þýðast hann kynferðislega.
Tveimur árum áður hafði rithöfundurinn Gabriel Sherman haldið
því fram í bók sem hann gaf út að Roger hefði um árabil nýtt völd
sín til að áreita konur og fá þær í rúmið með sér gegn loforðum
um starfsframa og hærri laun. Þessu hafði Roger harðneitað, rétt
eins og hann og lögmenn hans gerðu fyrst eftir að Gretchen kærði
hann, þrátt fyrir vitnisburði sex kvenna sem Gabriel tefldi fram.
En kæra Gretchen, sem Nicole Kidman leikur í Bombshell, varð til
þess að enn fleiri konur stigu fram og höfðu sömu sögu að segja
af framferði Rogers, þ. á m. fréttakonan Megyn Kelly sem leikin
er af Charlize Theron. Margot Robbie leikur hins vegar skáldaða
persónu sem í sögunni er nokkurs konar fulltrúi allra hinna kvenn-
anna sem Roger braut á í tíð sinni sem stjórnarformaður Fox News.
Myndin verður frumsýnd fyrir áramót í Bandaríkjunum en fer svo
í almenna dreifingu í byrjun janúar og er því spáð að hún muni
hljóta margar tilnefningar til helstu kvikmyndaverðlauna ársins.
Hinar raunverulegu Gretchen Carlson og Megyn Kelly og á milli
þeirra er sá sem allt snerist um, Roger Ailes, stjórnarformaður
Fox News, en hann er leikinn af John Lithgow í myndinni.
6
Myndir mánaðarins