Myndir mánaðarins MM Nóvember 2019 Bíóhluti | Page 22
Ford v Ferrari
Gefðu allt í botn!
Ford v Ferrari eftir James Mangold er sönn saga um samstarf
kappakstursmannsins Kens Miles og bílasmiðsins og frum-
kvöðulsins Carrolls Shelby sem árið 1966 fengu 90 daga til
að setja saman bíl hjá Ford-verksmiðjunum sem gæti sigrað
Ferrari í Le Mans-kappakstrinum, en Ferrari-bifreiðar báru á
þessum tíma höfuð og herðar yfir aðra kappakstursbíla.
Þótt hinn sólarhringslangi Le Mans-kappakstur sem fram fór 18.–
19. júní 1966 sé auðvitað hápunktur þessarar myndar er sjónum
hér fyrst og fremst beint að þeim félögum Ken Miles og Carroll
Shelby sem voru gerólíkir að upplagi en áttu kappakstursáhugann
sameiginlegan. Báðir höfðu þeir komið ár sinni vel fyrir borð þegar
hér var komið sögu en vildu meira og dreymdi um að hanna bíl sem
gæti skorað Ferrari á hólm í Le Mans. Sú vegferð reyndist þyrnum
stráð en þeir Ken og Carroll voru ekki þekktir fyrir að gefast upp ...
Ford v Ferrari
Matt Damon og Christian Bale leika þá Carroll Shelby og Ken Miles og
eru báðir taldir líklegir kandídatar til Óskarsverðlauna fyrir þá túlkun.
Sannsögulegt
152
mín
Aðalhlutverk: Christian Bale, Matt Damon, Caitriona Balfe, Jon
Bernthal, JJ Feild, Josh Lucas, Ray McKinnon, Noah Jupe, Tracy
Letts og Jenelle McKee Leikstjórn: James Mangold Bíó: Smárabíó,
Laugarásbíó, Sambíóin Egilshöll og Kringlunni og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 15. nóvember
Punktar ....................................................
Ford v Ferrari hefur verið sýnd á nokkrum kvikmyndahátíðum og
hlotið mjög góða dóma þeirra sem séð hafa. Þykir hún gefa frá-
bæra innsýn í kappaksturslífið á sjöunda áratug síðustu aldar og
hafa þeir Matt Damon og Christian Bale báðir verið nefndir sem
líklegir kandídatar til Óskarsverðlauna fyrir leik sinn svo og myndin
sjálf, leikstjórn hennar og handrit. Við sjáum hvað setur í þeim
efnum en það er a.m.k. ljóst að hér er á ferðinni toppskemmtun
sem langflestir kvikmyndaunnendur munu hafa mjög gaman af.
l
Myndinni er leikstýrt af James Mangold sem á m.a. að baki þekktar
og góðar myndir eins og Logan, The Wolverine, 3:10 to Yuma, Walk
the Line, Identity, Kate & Leopold, Girl, Interrupted og Cop Land.
l
Ferrari-bílarnir báru á þessum tíma af í kappakstursheiminum.
Veistu svarið?
Þetta er í fyrsta sinn sem þeir Matt Damon og Christian
Bale leika saman í bíómynd en þeir eiga það m.a.
sameiginlegt að hafa hampað hvor sínum Óskarnum
og voru svo báðir tilnefndir til Óskars árið 2016 fyrir
leik í tveimur ólíkum myndum Hvaða myndum?
Matt fyrir The Martina og Christian Bale fyrir The Big Short.
22
Myndir mánaðarins
Ken Miles var einn sigursælasti ökuþór Bandaríkjanna á fimmta og
sjötta áratug 20. aldar og keppti m.a. á Bugatti, Alfa Romeo og Ford.