Myndir mánaðarins MM Maí 2019 DVD BR VOD Tleikir | Page 8

Gullkorn Pabbi hét Vernon Vaughn og mamma var eitthvað svo hrifin af V-inu að hún skýrði okkur systkinin V-nöfnum, Vince, Vict- oria og Valerie. Okkur fannst þetta svalt en það skyggði á að hundarnir hétu líka V-nöfnum. - Vince Vaughn. Leikstjórn. Ekki það að mér finnist ekki gaman að leika, mér finnst það, en leikstjórnin gefur meira af sér vegna þess að þá hefur maður meiri stjórn yfir verkinu. - Mel Gibson, spurður hvort honum finnist skemmtilegra, að leikstýra eða leika. Airplane, engin spurning. Ég fór á hana oft í bíó og grét af hlátri í hvert sinn. „Boy Trapped in Refrigerator Eats Own Foot“ er besti bíóbrandari allra tíma. - Adam McKay, um uppáhalds- myndina. Ég get verið alveg jafn illskeyttur og orðljótur og hver annar. En ég hef val og ég hef valið að reyna að láta bara það frá mér sem ég myndi vilja fá til baka. - Lin-Manuel Miranda. 8 Myndir mánaðarins Þetta er mynd um mannlega hegðun og mannleg hegðun hefur alltaf verið áhugamál hjá mér. Hvað fólk gerir, hvernig það hegðar sér. Hvernig það bregst við. Og litli strákurinn í þessari mynd ... Justin Henry ... ég held að það sé besti leikur sem barn á hans aldri hefur sýnt. - Emily Blunt, að tala um eina af sínum uppáhaldsmyndum, Kram- er vs Kramer. Að búa til bíómynd er löng ferð í gegnum langan dal sem er fullur af málamiðlunum. - Hans Petter Moland, sem leikstýrir myndinni Cold Pursuit. Til hvers á maður að lesa gagn- rýni? Ég meina, gerð myndarinnar er lokið, hún er komin út, það er verið að sýna hana, það er ekki hægt að breyta henni. Ef þeir hefðu skrifað gagnrýnina áður en myndin var gerð þá væri kannski vit í að lesa hana, ekki eftir á. - Stephen Merchant. Sú versta? Ja ... ég veit að maður á ekki að vera að setja sig á háan hest því auðvitað skiptast á skin og skúrir í þessu eins og öllu öðru og maður hefur svo sem sjálf klúðrað hlutum ... en ... ég held samt að ég megi segja að ég vildi óska þess að myndin Confetti væri ekki á ferilskránni minni. - Olivia Coleman. Það er ástæða fyrir því að leikarar umgangast leikara meira en aðra. Hún er sú að þegar leikarar eru saman þá eru þeir ekki að spyrja hvernig það hafi verið að leika í þessu og þessu, eða hvort maður hafi hitt þennan eða hinn, eða hvað manni finnst um þessa mynd og þennan leikstjóra. Leikarar eru einfaldlega eina fólkið sem maður getur verið með án þess að þurfa stöðugt að svara svona spurningum. - Bryan Cranston. Fyrir mig þá er þetta ekki vinna. Þetta er ástríða. Þetta er skemmtilegt og gefandi. Ég veit eiginlega ekki af hverju ég elska þetta. Ég bara geri það. Að útskýra hvers vegna er eins og að reyna að útskýra hvers vegna maður elskar foreldra sína. Það er ekki hægt, maður bara elskar þá. - Saoirse Ronan, um leiklist. Berðu virðingu fyrir sjálfum þér og líkama þínum. Berðu virðingu fyrir verkefnum þín- um. Sjálfsvirðing leiðir af sér sjálfsöryggi og sjálfsöryggi leiðir af sér sköpunarkraft. - Clint Eastwood. Ég á mjög erfitt með að tala um myndirnar mínar því ég vil að hver og einn upplifi þær á sinn hátt. Ef ég færi að reyna að lýsa þeim myndi ég skemma þá upplifun því þá færi fólk að reyna að sjá þessar myndir með mínum augum. Og það vil ég ekki. - Yorgos Lanthimos. Já, það var skrítin upplifun sem ég var engan veginn búin undir. En ég var með frábæra ráðgjafa. - Margot Robbie, um skyndifrægð- ina eftir The Wolf of Wall Street. Ég er þakklát fyrir hvert það starf sem mér er boðið. Ég veit hvað það er að vera atvinnulaus. - Rosa Salazar. Það halda næstum því allir að ég sé rauðhærð. Skiljanlega. En ég er ljóshærð. Þetta rauða er litur. - Emma Stone. Það er ekkert jafn tilgangslaust og frægðin. Raunverulegur til- gangur lífsins er að kunna að rækta góðar gulrætur. - Jean Dujardin.