Bíófréttir – Væntanlegt
Líf tónlistarmannsins Jacks Malik breytist verulega þegar hann
rankar við sér eftir slys og uppgötvar að hann er eini maðurinn
í heiminum sem veit hverjir Bítlarnir voru og kann lögin þeirra.
Hefurðu heyrt um Bítlana?
Það hlakka margir til að sjá nýjustu mynd leikstjórans Dannys Boyle
og handritshöfundarins Richards Curtis, Yesterday, sem frumsýnd
verður í júní, en stiklurnar úr henni hafa notið gríðarlegra vinsælda
á netinu að undanförnu. Eins og flest kvikmyndaáhugafólk veit
fjallar myndin um tónlistarmanninn Jack Malik (Himesh Patel) sem
er alveg að gefast upp á að hafa í sig og á með tónlist þegar hann
verður kvöld eitt fyrir bíl og missir meðvitund. Þegar hann vaknar
er hann kominn inn í einhvers konar hliðarveröld þar sem Bítlarnir
voru ekki til og enginn þekkir tónlist þeirra – nema hann.
Það kemur sennilega engum á óvart sem þekkir til vinnubragða
leikstjórans Dannys Boyle, svo ekki sé talað um Richards Curtis,
handritshöfundar mynda eins og Love Actually, Four Weddings
and a Funeral og About Time, að innanbúðarfólk sem séð hefur
myndina segir hana algerlega frábæra og að hún fari umsvifalaust
í flokk með skemmtilegustu rómantísku kómedíum sem gerðar
hafa verið. Við hin sem höfum ekki séð myndina getum því látið
okkur hlakka enn meira til, en Yesterday verður frumsýnd 26. júní.
Þeir J og K (Will Smith og Tommy Lee Jones) hafa nú dregið sig
í hlé frá skyldustörfum hjá MIB-sveitinni og þau M og H (Tessa
Thompson og Chris Hemsworth) eru komin í þeirra stað.
Hver er svikarinn?
Fjórða myndin um Men in Black-
sérsveitina sem hefur það verkefni
með höndum að hafa hemil á geim-
verunum sem búa á meðal manna
og passa að þær séu ekki með
uppsteyt, hvað þá einhver heims-
yfirráðaplön, kemur í bíó um miðjan
júní, 22 árum eftir að fyrsta MIB-
myndin var frumsýnd og sjö árum
eftir að sú þriðja sló í gegn árið 2012.
MIB-sérsveitarmennirnir J og K sem
þeir Will Smith og Tommy Lee Jones
léku í fyrstu myndunum þremur
hafa nú lagt skóna á hilluna og við eru tekin þau M og H sem
Tessa Thompson og Chris Hemsworth leika. Sem fyrr sinna þau alls
konar útköllum þar sem geimverur eru til vandræða en þótt þau
hafi fengið ágæta þjálfun er ekkert sem gat búið þau undir átökin
sem framundan eru. Að auki steðjar að ný ógn því eftir alls kyns
hrakfarir komast þau að því að innan MIB leynist sennilega svikari
sem nauðsynlegt er að finna og uppræta áður en það er of seint.
Athugið að í tilefni af frumsýningu MIB International verða fyrri
myndirnar þrjár endurútgefnar á sjónvarpsleigunum 30. maí, bæði
fyrir þá eldri sem vilja rifja þær upp, svo og fyrir nýjar kvikmynda-
kynslóðir sem vaxið hafa úr grasi á þeim 22 árum sem liðin eru
síðan sú fyrsta var frumsýnd. Sjá bls. 32 hinum megin í blaðinu.
Ed Sheeran leikur sjálfan sig í Yesterday.
Lily James leikur Ellie sem hefur lengi verið ástfangin af Jack
en glímir við þann vanda að hann hefur aldrei áttað sig á því.
8
Myndir mánaðarins
Baráttan við uppivöðuslusamar geimverur berst í þetta sinn til ann-
arra landa og á því ferðalagi tekst þeim M og H að brotlenda farar-
tæki sínu í miðri eyðimörk. Hvað þau taka til bragðs vitum við ekki.