Myndir mánaðarins MM Maí 2019 Bíóhluti | Page 28

Brightburn Hvað ef ...? Bændahjónin Kyle og Tori Breyer vita ekki hvaðan á sig stendur veðrið þegar eitthvað sem líkist lofsteini skellur á landareign þeirra. Við athugun á málinu finna þau kornabarn sem virðist hafa komið með þessari sendingu utan úr geimnum og ákveða að ganga því í foreldra stað. Það á ekki eftir að fara vel. Brightburn er í leikstjórn Davids Yarovesky en hún er framleidd af James Gunn sem gerði Guardians of the Galaxy-myndirnar og er handritið eftir bróðir hans, Brian Gunn, og frænda þeirra, Mark Gunn. Hafa ýmsir bent á að grunnsagan í myndinni líkist sögunni um það þegar Súperman kom til jarðar og var tekinn í fóstur af Kent-hjónunum. Munurinn er hins vegar sá að þegar þessi ungi maður utan úr geimnum, sem Breyer-hjónin nefna Brandon, vex úr grasi og uppgötvar að hann er gæddur nánast sömu ofurkröftum og Súperman nýtir hann þá ekki til góðs heldur til að hefna sín á þeim sem hann telur hafa gert á sinn hlut. Þar eru skólafélagarnir efstir á blaði eftir að hafa veist að honum um árabil og beitt hann einelti og ekki síður skólayfirvöld sem sýndu honum lítinn skilning ... Brightburn Tryllir 96 mín Aðalhlutverk: Elizabeth Banks, David Denman, Jackson A. Dunn, Matt Jones, Meredith Hagner, Steve Agee, Becky Wahlstrom og Stephen Blackehart Leikstjórn: David Yarovesky Bíó: Smárabíó, Háskólabíó, Laugarásbíó, Sambíóið Egilshöll og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 22. maí Elizabeth Banks leikur Tori Breyer sem finnur kornabarn eftir að ókennilegur hlutur utan úr geimnum lendir á landareign hennar og eiginmannsins og ákveður að ala það upp sem sitt eigið. Punktar .................................................... Brightburn er önnur myndin í fullri lengd sem David Yarovesky leikstýrir en sú fyrri var vísindahrollvekjan The Hive sem hann sendi frá sér 2014 og hlaut góða dóma margra sem hana sáu. Þess má geta að hann og Gunn-bræðurnir hafa lengi verið vinir og vann David t.a.m. að báðum Guardians of the Galaxy-myndunum. l Tori hefur lengi vel trú á Brandon, en það á eftir að breytast. Veistu svarið? Elizabeth Banks, sem á 20 ára leikferil að baki, hefur einnig sent frá sér eina mynd sem leikstjóri, Pitch Perfect 2 árið 2015. Í nóvember verður önnur mynd sem hún leikstýrir frumsýnd en sú er endurgerð vinsællar myndar frá árinu 2000. Hvaða myndar? Þegar Brandon, sem Jackson A. Dunn leikur, vex úr grasi kemur í ljós að hann er einrænn og utangátta og verður af þeim sökum fyrir einelti í skólanum. Fyrir það á hann eftir að hefna grimmilega. Charlie’s Angels. 28 Myndir mánaðarins