Myndir mánaðarins MM Mars 2019 DVD BR VOD og tölvuleikir | Page 8
Gullkorn
Við höfum ekki beðið um skilnað.
- Jamie Lee Curtis, spurð hvaða
leyndardómur liggi að baki því
að hjónaband hennar og Christ-
ophers Guest hafi enst í 35 ár.
Fólk heldur eðlilega að „óháður“
kvikmyndagerðarmaður sé eng-
um háður. Þetta er ekki alveg rétt.
Maður er alltaf háður þeim sem
fjármagna myndina. „Óháður“
þýðir hins vegar að þeir sem
útvega fjármagnið geta ekki
tekið yfir eða breytt mynd kvik-
myndagerðarmannsins á nokkurn
hátt án hans samþykkis. Um það
semja stóru fyrirtækin ekki.
- David Gordon Green.
Hún á það til að sýna allar gerðir
tilfinninga á sömu fimm mínút-
unum. Draumur allra leikara.
- Olivia Colman, um persónuna
sem hún leikur í The Favourite,
Önnu Englandsdrottningu.
Hvergi. Ég hata að fara í verslanir,
finnst fátt leiðinlegra en að versla.
- Rachel Weisz, spurð hvar hún
versli helst.
8
Myndir mánaðarins
Þetta er reyndar stolin mynd-
líking frá Ryan Gosling en ... þú
veist ... þú ert að gera eitthvað,
dunda þér við eitthvað heima
eða einhvers staðar úti að keyra
og ert með útvarpið á. Mörg
lög fara inn um annað en út um
hitt ... en svo kemur allt í einu
lag sem maður hefur ekki heyrt
áður og nær athygli manns ...
fær mann til að sperra eyrun. Svo
hækkar maður. Svo finnur maður
út hvaða lag þetta er og hlustar
á það aftur. Og aftur. Ég er alltaf
að leita að nákvæmlega þessu
þegar ég les handrit. Einhverju
í aðstæðunum eða persónunum
sem grípur svona í mig. Ef það
gerist þá kviknar áhuginn.
- Emma Stone, spurð hvers konar
hlutverk heilli hana helst.
Þeir eru handan við það að vera
fágaðir herramenn. Um leið eru
þeir heilsteyptustu manneskjur
sem ég hef kynnst. Það skipti þá
öllu að mér tækist að túlka besta
vin þeirra eins vel og hægt var.
- Rami Malek, að tala um þá Brian
May og Roger Taylor.
Við Kanadamenn erum svona
mitt á milli alls sem er og
eiginlega ekkert í sjálfu sér. Við
erum ekki enskir, ekki franskir,
ekki amerískir ... heldur einhvers
staðar þarna mitt á milli ... og
í engu sérstakir. Ef við værum
grænmeti þá værum við sellerí.
- Mike Myers.
Ég notaði aldrei Christopher-
millinafnið. Var bara John Reilly.
Svo þegar ég var að leika í
Casualties of War fékk ég bréf frá
stéttarfélaginu og var beðinn
að nota millinafnið til að forðast
rugling því það væru svo margir
John Reillyar í bransanum. Þeir
féllust á að ég notaði bara C-ið.
Síðan hef ég verið John C. Reilly.
- John C. Reilly. Síðasta gagnrýni sem ég las
birtist árið 1975. Þá skrifaði
Pauline Kael um leik minn í The
Day of the Locust: „Það var ekkert
sérstakt sem var rangt við leik
Donalds Sutherland, hann var
bara að öllu leyti skelfilegur.“ Ég
hef ekki lesið gagnrýni síðan.
- Donald Sutherland.
Það langbesta við að eldast er
að atvinnuleysi verður skemmti-
legra og skemmtilegra.
- Rupert Everett. Ég held ég hafi séð allar myndir
með Gwyneth Paltrow, Winonu
Ryder og Kirsten Dunst. Svarar
það ekki spurningunni?
- Emma Roberts, spurð hvaða leik-
konur hafi haft mest áhrif á hana.
Ég hef unnið með mörgum góð-
um leikstjórum en að öllum
öðrum ólöstuðum þá eru Coen-
bræður mestu fagmennirnir sem
ég hef kynnst. Þeir vissu alltaf
nákvæmlega hvað þeir voru að
gera og það voru aldrei neinar
efasemdir eða breytingar á neinu
sem hafði verið ákveðið. Svo eru
þeir svo fljótir að vinna tökurnar.
Ég var alltaf komin heim kl. 5.
- Carey Mulligan sem lék m.a. í
myndinni Inside Llewyn Davis.
Ég græt oft og mikið. Vel gerð
líftryggingaauglýsing kostar mig
hálfan kassa af Kleenex.
- Ike Barinholtz.
London er uppáhaldsborgin
mín. Fyrir utan að þar býr fólk frá
öllum löndum veraldar drýpur
mannkynssagan af nánast öllu
sem þú sérð þar. Hvert einasta
hús virðist búa yfir leyndarmáli.
- Alison Sudol, sem lagði stund á
sagnfræði þegar hún var í skóla.
Sumir segja að leikarar setji upp
grímu þegar þeir leika. Þessu er
ég algerlega ósammála því fyrir
mér felst leikur einmitt í því að
taka grímuna niður.
- Viola Davis.