Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 27
Myndasyrpa í lokin
Olivia Wilde var bersýnilega nokkuð sátt við
tilveruna þar sem hún mætti á forsýningu
myndar sinnar Booksmart í London 7. maí.
Myndin, sem er fyrsta mynd Oliviu sem
leikstjóra, hefur fengið frábæra dóma. Tískukóngurinn Marc Jacobs sýndist frekar
lágvaxinn þar sem hann var á göngu með
tveimur af frægustu ofurfyrirsætum síðari
tíma, þeim Naomi Campell og Kate Moss, á
Madison-breiðstrætinu í New York 7. maí. Brad Pitt og Leonardo DiCaprio voru flottir
á kvikmyndahátíðinni í Cannes 21. maí þar
sem þeir mættu til að vera viðstaddir frum-
sýningu myndarinnar Once Upon a Time in
Hollywood eftir Quentin Tarantino.
Sophie Turner, sem gert hefur garðinn frægan
í Game of Thrones og leikur Jean Grey í mynd-
inni Dark Phoenix, skrapp í göngutúr í New
York 18. maí með einn af hvolpum sínum
og eiginmannsins, Joes Jonas, í fanginu. Þeir Elton John og Taron Egerton sem leikur
Elton í myndinni Rocketman mættu að sjálf-
sögðu á frumsýningu myndarinnar í Cannes
16. maí þar sem bæði þeir og myndin sjálf
hlutu frábærar viðtökur viðstaddra. Þau Halle Berry og Keanu Reeves voru hæst-
ánægð hvort með annað þegar þau hittust á
Sunset Boulevard í Hollywood þar sem Keanu
fékk sín eigin handa- og fótaför steypt í gang-
stéttina fyrir framan við Kínverska leikhúsið.
Myndir mánaðarins
27