Myndir mánaðarins MM Júní 2019 DVD VOD Tleikir | Page 17
The Lego Movie 2: The Second Part
al
Hemmi bjargar heiminum
Það eru liðin fimm ár síðan viðkunnanlegi verkakubburinn
Hemmi bjargaði heimaborg sinni frá tortímingu með aðstoð
vina sinna sem sumir hverjir voru gæddir ofurkröftum. Nú þarf
Hemmi að taka á honum stóra sínum á ný þegar bestu vinkonu
hans, Lísu, er rænt af stórskrítnum geimverum ... sem þýðir
auðvitað að Hemmi verður að fljúga út í geim og bjarga henni.
The Lego Movie, sem kom út árið 2015 er á meðal skemmtilegustu
mynda sem gerðar hafa verið enda naut hún mikilla vinsælda um
allan heim hjá fólki á öllum aldri. Óhætt er að fullyrða að þessi nýja
Lego-mynd gefi henni ekkert eftir hvað húmor og skemmtilegheit
varðar, en í henni ferðast hinn ávallt bjartsýni Hemmi út í óravíddir
alheimsins þar sem margvíslegar áskoranir bíða bæði hans og nýrra
og gamalla vina sem láta að sjálfsögðu ekki sitt eftir liggja ...
The Lego Movie 2
Þrátt fyrir að hafa mjög ólíka sýn á nánast allt eru þau Hemmi og Lísa
bestu vinir. Á þau tryggðarbönd reynir þegar Lísu er rænt af geim-
verum og Hemmi verður að ferðast út í geim til að bjarga henni.
The Second Part
Kubbamynd
VOD
106
mín
Punktar ....................................................
Myndin er að sjálfsögðu talsett á íslensku eins og sjá má á kredit-
listanum hér til vinstri en í ensku útgáfunni eru það m.a. þau Chris
Pratt, Elizabeth Banks, Will Arnett, Tiffany Haddish, Alison Brie, Will
Ferrell, Channing Tatum, Jonah Hill, Maya Rudolph, Nick Offerman,
Stephanie Beatriz, Jason Momoa, Gal Gadot, Margot Robbie, Brook-
lynn Prince og Bruce Willis sem ljá persónunum raddir sínar.
l
Íslensk talsetning: Sigurður Þór Óskarsson, Salka Sól Eyfeld, Bryndís
Ásmundsdóttir, Orri Huginn Ágústsson, Aldís Amah Hamilton, Steinn
Ármann Magnússon, Sigríður Eyrún Friðriksdóttir, Oddur Júlíusson,
Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Björgvin Franz Gíslason, Júlía Guðrún
Lovísa Henje, Lára Björk Hall, Kolfinna Orradóttir, Þórunn Erna
Clausen og m.fl. Leikstjórn: Rósa Guðný Þórsdóttir
Útgefandi: Síminn og Vodafone
17. júní
Fyrir utan þau Hemma og Lísu mæta fjölmargar af persónum fyrri
myndarinnar aftur til leiks í The Lego Movie 2 og margar nýjar, þar
á meðal persónur utan úr geimnum sem eru hver annarri skrítnari.
Hinn snjalli og úrræðagóði Rex hættuspil (Rex Dangervest í ensku
útgáfunni) kemur mikið við sögu en honum svipar grunsamlega
mikið til Peters Quill úr Guardians of the Galaxy-myndunum.
Myndir mánaðarins
17