Myndir mánaðarins MM Janúar 2020 Bíóhluti | Page 37
Like a Boss
Krókar á móti brögðum
Þær Mel og Mia eru bestu vinkonur sem hafa gengið saman í
gegnum súrt og sætt og reka sína eigin verslun með förðunar-
vörur. Sá rekstur hefur hins vegar ekki gengið sem skyldi upp
á síðkastið og þegar viðskiptakonan Claire Luna býðst til að
koma þeim til bjargar með meira en milljón dollara innspýt-
ingu telja þær sig himin hafa höndum tekið – eða allt þar til
þær uppgötva að Claire er sannkallaður úlfur í sauðargæru.
Like a Boss er lauflétt gamanmynd sem gæti alveg tekið upp á því
að slá í gegn hjá gamanmyndaunnendum ef marka má stiklurnar
úr henni sem eru bráðfyndnar. Eftir að þær Mia og Mel taka tilboði
Claire og uppgötva svo að í raun hafa þær gengið í útsmogna gildru
sem sviptir þær öllu fellur þeim allur ketill í eld. En það á eftir að
ganga yfir og Claire mun sjá að fleiri en hún geta beitt blekkingum!
Tiffany Haddish og Rose Byrne leika þær Miu og Mel og má segja að
hér leiði saman hesta sína tvær helstu og vinsælustu grínleikkonur
Bandaríkjanna og Ástralíu um þessar mundir. Þess má geta að þær
eru báðar fæddar árið 1979, Rose 24. júlí og Tiffany 3. desember.
Like a Boss
Gamanmynd
83
mín
Punktar ....................................................
Leikstjóri myndarinnar, Miguel Arteta, á að baki nokkrar þekktar
myndir eins og Chuck & Buck, The Good Girl, Alexander and the Terri-
ble, Horrible, No Good, Very Bad Day, Youth in Revolt og núna síðast
Beatriz at Dinner þar sem Salma Hayek lék einmitt titilpersónuna.
l
Aðalhlutverk: Rose Byrne, Tiffany Haddish, Salma Hayek, Jennifer
Coolidge, Billy Porter, Ari Graynor, Jessica St. Clair, Jimmy O. Yang,
Karan Soni og Natasha Rothwell Leikstjórn: Miguel Arteta
Bíó: Sambíóin Álfabakka, Kringlunni, Egilshöll, Akureyri og Keflavík
Frumsýnd 31. janúar
Framleiðendur Like a Boss eru þeir Peter Principato, Itay Reiss,
Nicolas Stern og Joel Zadak en þeir eru þekktir fyrir framleiðslu
gamanmynda eins og Death at a Funeral, Friends with Benefits,
Warm Bodies, Ride Along 1 og 2, Flock of Dudes og Key og Peele-
myndarinnar Keanu auk framleiðslu margra þekktra sjónvarpsþátta.
l
Hermt er að hlutverk Miu hafi verið skrifað sérstaklega með Tiffany
Haddish í huga sem réð svo einnig miklu um annað leikaraval.
l
Það gengur á ýmsu hjá vinkonunum á meðan mestu vonbrigðin
ganga yfir en allt á eftir að breytast þegar þær snúa vörn í sókn.
Veistu svarið?
Fyrir utan þær Rose Byrne, Tiffany Haddish og Sölmu
Hayek fara margar aðrar þekktar gamanleikkonur
með aukahlutverk í myndinni, þ. á m. Jennifer Cool-
idge sem segja má að hafi fyrst slegið í gegn alþjóð-
lega í frægri gamanmynd árið 1999. Hvaða mynd?
Salma Hayek leikur hina útsmognu Claire Luna sem reynist langt frá
því að vera sá bjargvættur Mel og Miu sem hún þykist í fyrstu vera.
American Pie.
Myndir mánaðarins
37