Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 DVD VOD og tölvuleikir | Page 8
Gullkorn
Los Angeles er frábær en maður
saknar hennar ekki þegar maður
er ekki þar, öfugt við New York.
Mér finnst alltaf leiðinlegt að yfir-
gefa New York.
- Kelly Macdonald, sem er Skoti og
býr í Glasgow.
Yfirleitt hefur maður ekki efni á
að hafna vinnu og fyrir utan að
ég hef auðvitað þurft að hafna
hlutverkum sem stönguðust á við
önnur verkefni sem ég hafði tekið
að mér þá hef ég bara einu sinni
sagt „nei takk“ við hlutverki. Það
var í mynd þar sem ég átti að leika
hryðjuverkamann.
- Irrfan Khanw.
Ég sé hana ekki sem vísindaskáld-
sögu. Mér finnst þetta vera raun-
veruleikinn sem við stefnum í.
- Andrew Niccol, um nýjustu mynd
sína, Anon.
Kynþokkafyllsti hluti líkamans eru
augun. Þar myndast tengingin.
- Clive Owen.
8
Myndir mánaðarins
Síðan ég gifti mig (2010) hef ég
látið konuna (Catherine Fitz-
gerald) alfarið um að ákveða
hverju ég klæðist hverju sinni.
Henni finnst það gaman og eftir
að ég komst yfir niðurlæging-
una hef ég komist að því að þetta
var afar snjall leikur hjá mér.
- Dominic West. Mér var eitt sinn boðið að vera
heiðursgestur í gamla skólanum
mínum og í stað þess að koma
bara og þakka fyrir mig ákvað
ég að skrifa mína fyrstu ræðu.
Þannig byrjaði þetta.
- Nick Offerman, um tildrög þess
að hann skrifaði uppistandssýn-
ingu sína, American Ham.
Ég hef aldrei kunnað við frægð-
ina og mér finnst alltaf óþægilegt
að þekkjast úti á götu og geta
ekki farið í búðir án þess að vekja
athygli. Ég er hrædd um að ég sé
ekki mjög góð í að vera fræg.
- Keira Knightley. Ég veit það ekki. Ég reyni bara að
gefa þeim persónum sem ég leik
hluta af sjálfri mér um leið og ég
tek alltaf hlut af persónunni og
geymi með mér. Einhvern veginn
byggist þetta svo bara upp.
- Kiersey Clemons, um hvernig hún
nálgast verkefni sín.
Ég virði auðvitað marga í þessum
bransa en ef ég þarf að nefna
einn þá er það Sean Penn. Hann
er allt í senn, frábær leikari, hand-
ritshöfundur og leikstjóri.
- Boyd Holbrook. Það sem gerðist var að ég vildi
spila fótbolta en var ekki valin
í skólaliðið. Þá ákvað ég að fara
í leiklistartíma. Þar var ég valin
til að fara með aðalhlutverkið í
skólaleikriti og eftir það varð ekki
aftur snúið.
- Vera Farmiga, um upphafið.
X-mennirnir voru hluti af mínu
uppeldi og mikið ræddir á
mínu heimili. Þeir hafa því verið
nokkurs konar fjölskylduvinir frá
því ég man eftir mér.
- Olivia Munn.
Að vera sagt að ég sé góð fyrir-
mynd. Ég er það ekki en þetta
hlýjaði mér um hjartaræturnar.
- Mandy Moore, um mesta hrósið.
Ég kem úr mjög músíkalskri fjöl-
skyldu. Pabbi kenndi mér að spila
á gítar og seinna fór ég að læra á
fiðlu og trommur. Það er ekki síst
þessu að þakka að í dag kann ég
vel að meta alla list, sama hvaða
nafni hún nefnist.
- Amandla Stenberg.
Ég hélt að með því að leika í
svona hrollvekju og sjá hvernig
þær eru búnar til myndi losa mig
við hræðsluna við að sjá þær.
Það hefur ekki gerst, ég er alltaf
jafnhrædd, jafnvel þótt ég viti frá
fyrstu hendi að þetta er allt í plati.
- Taissa Farmiga, sem leikur aðal-
hlutverkið í The Nun.
„Vertu eins og öndin,“ ráðlagði
mamma mér alltaf. „Hún lítur út
fyrir að vera róleg á yfirborðinu
en undir niðri er hún stöðugt að.“
- Michael Caine.
Ég á tíu bíla, þ. á m. Aston Martin,
Lotus og Morgan. Ég nota þá ekki
því ég er svo hræddur um að
skemma þá. Stundum ek ég þó
upp á hæðina og aftur til baka.
Svo nýt ég þess að þrífa þá.
- Steve Coogan, um eitthvað sem
fólk almennt veit ekki um hann.