Myndir mánaðarins MM Janúar 2019 Bíóhluti | Page 8
Nú árið er liðið ...
Vinsælustu myndir ársins
Írsk-bandaríska leikkonan Saoirse Ronan fagnar hér Golden Globe-
verðlaununum sem hún hlaut 2018 fyrir leik sinn í myndinni Lady Bird.
Verðlaunatíð framundan
Sem fyrr snúast áramótin og janúarmánuður í kvikmyndaheim-
inum að stóru leyti um að gera upp árið sem er nýliðið og
heiðra þá og þær sem þóttu skara fram úr á sínum sviðum innan
kvikmyndageirans, hvort sem þau stóðu fyrir framan eða aftan
vélarnar. Um leið eru kvikmyndirnar sjálfar vegnar og metnar af
hinum ýmsu fag- og áhugasamtökum í kvikmyndabransanum,
gagnrýnendum og almennu áhugafólki sem reyna síðan að
komast að niðurstöðu um hver sé besta mynd ársins.
Og eins og venjulega eru það stóru verðlaunahátíðirnar þrjár
sem fá mestu athyglina, þ.e. Golden Globe-verðlaunin, bresku
BAFTA-verðlaunin og svo Óskarsverðlaunin sem að þessu sinni
verða afhent sunnudaginn 24. febrúar en tilnefningar til þeirra
verða gerðar opinberar 22. janúar. Tilnefningar til bresku BAFTA-
verðlaunanna verða hins vegar gerðar heyrumkunnar 9. janúar
og fer afhending þeirra fram sunnudaginn 10. febrúar.
Golden Globe-hátíðin verður haldin með hefðbundnu sniði 6.
janúar á Hilton-hótelinu í Beverly Hills eins og undanfarin ár og
voru tilnefningar til þeirra verðlauna opinberaðar 6. desember.
Kennir þar margra grasa eins og alltafww en með flestar tilnefningar
að þessu sinni, sex talsins, er nýjasta mynd Adams McKay, Vice.
Með fimm tilnefningar eru svo A Star is Born, The Favorite eftir
gríska leikstjórann Yorgos Lanthimos og myndin Green Book eftir
Peter Farrelly, en hún er einmitt væntanleg í kvikmyndahúsin
hér á landi 11. janúar. Áhugasamir geta að sjálfsögðu flett öllum
öðrum tilnefningum upp á netinu og
eins og nokkrum sinnum áður eigum
við Íslendingar okkar fulltrúa á meðal
tilnefndra, þ.e. engan annan en Jón
Þór Birgisson, eða Jónsa í Sigurrós, sem
er tilnefndur ásamt tveimur meðhöf-
undum sínum fyrir lagið Revelation
úr Boy Erased eftir Joel Edgerton. Það
verður þó á brattann að sækja fyrir Jónsa
og félaga ef marka má erlendar spásíður
sem spá því einróma að lagið Shallow úr
A Star is Born hljóti hinn gullna hnött að
þessu sinni. En auðvitað getur allt gerst.
8
Myndir mánaðarins
Á blaðsíðum 34–35 hér í bíóhluta blaðsins erum við að venju
með listann okkar yfir vinsælustu myndir ársins í íslenskum kvik-
myndahúsum á árinu sem er að líða. Þar er myndin Avengers:
Infinity War í þriðja sæti en á heimsvísu bar hún hins vegar höfuð
og herðar yfir aðrar myndir í aðsókn og halaði inn 2.047 milljónir
dollara í miðasölu. Í öðru sæti heimslistans er svo önnur ofur-
hetjumynd frá Marvel, Black Panther, með 1.347 milljónir dollara,
en óhætt er að segja að vinsældir hennar hafi komið á óvart því
þótt henni væri vissulega spáð ágætu gengi bjuggust fáir við því
fyrirfram að hún yrði þetta vinsæl. Þess utan kom hún einnig á
óvart með því að verða vinsælasta myndin í kvikmyndahúsum í
Bandaríkjunum þar sem Avengers: Infinity War varð í öðru sæti.
Í þriðja sæti heimslistans er myndin Jurassic World: Fallen King-
dom með 1.305 milljónir dollara í tekjur og í fjórða sæti er teikni-
myndin Incredibles 2 með 1.241 milljón dollara. Þar með eru þær
myndir upptaldar sem náðu inn tekjum umfram milljarð í doll-
urum talið því í fimmta sæti listans er myndin Venom með 853
milljónir dollara. Í sætum sex til tíu eru svo myndirnar Mission:
Impossible - Fallout, Deadpool 2, Bohemian Rhapsody, AntMan and
the Wasp og Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald. Þess ber
auðvitað að geta að þessi röð tekjuhæstu mynda ársins 2018 gæti
breyst lítillega þegar upp er staðið þar sem þetta er skrifað 17.
desember og því dálítið eftir af árinu. Annars geta áhugasamir
flett öllum þessum tölum upp á vefnum boxofficemojo.com og
skoðað þær og aðrar aðsóknartölur frá hinum ýmsu hliðum.
En ... talandi um Avengers ...
... þá megum við til með að minnast á að fyrsta stiklan úr fjórðu
Avengers-myndinni Endgame, sem er jafnframt þráðbeint fram-
hald af þriðju myndinni, var frumsýnd í byrjun desember og
sló þegar áhorfsmet enda bíða óteljandi aðdáendur eftir að sjá
hvernig í ósköpunum ofurhetjurnar sem eftir lifa ætla að fara
að því að bjarga málunum nú þegar Thanos hefur eytt helmingi
alls lífs á Jörðu, þ. á m. helmingnum af hetjunum. Það kemur að
sjálfsögðu ekki í ljós í nýju stiklunni enda hefur þess verið gætt
að láta ekkert kvisast út um söguþráðinn. Hins vegar er margt
áhugavert í henni fyrir aðdáendur, en við erum ekkert að spilla
þeirri upplifun fyrir þeim sem hafa ekki enn séð hana og bíðum
bara spennt eins og aðrir eftir frumsýningardeginum 26. apríl.