Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 DVD VOD og tölvuleikir | Page 8
Gullkorn
Mér hefur alltaf fundist skemmti-
legast að leika „vonda kallinn“
þannig að það er ekki bara til-
viljun að ég hef leikið hann svo
oft á mínum ferli. Ég bað um það.
- Ian McShane.
Fólk heldur oft að vegna þess að
mér hefur tekist að fá það til að
hlæja í bíómyndum og í sjónvarpi
þá muni ég gera það líka þegar
það hittir mig í eigin persónu.
Þetta er mikill misskilningur. Ég er
sennilega einn ófyndnasti maður
sem þú getur hitt.
- Rowan Atkinson.
8
Ég sé mest eftir að hafa ekki
uppgötvað það fyrr hvað mér
finnst gaman að vera móðir. Ef ég
hefði áttað mig á því fyrr hefði ég
ekki gift mig þrisvar.
- Whoopi Goldberg, sem á eina
dóttur, Alex Martin (f. 1973), frá
sínu fyrsta hjónabandi.
Þetta eru upphaflega varnarvið-
brögð úr æsku minni til að reyna
að halda kvölurum mínum frá
mér. Síðar tók ég þetta með mér
í sviðsframkomuna, en alltaf á
jákvæðan hátt. Það vogar enginn
sér að rífa kjaft við mig.
- Grace Jones, spurð um aggressíva
framkomu sína á sviði.
Ég lít ekki á skilnað sem endi,
heldur byrjun.
- Olga Kurylenko, sem er tvígift og
tvískilin. Ég er löngu hættur að taka gagn-
rýni inn á mig, hvort sem hún er
neikvæð eða jákvæð. Sumt geng-
ur einfaldlega upp á meðan ann-
að gengur einfaldlega ekki upp.
- Nicolas Cage.
Todd Phillips er auðvitað uppá-
haldsleikstjórinn minn enda réð
hann mig í fyrstu Hangover-mynd-
ina. Annars væri ég ekki leikari.
- Ken Jeong. Pride and Prejudice. Ég sá hana 4
þúsund sinnum. Ég er ekki að grín-
ast. Ég kann handritið utanað.
- Claire Foy, spurð um hver væri
uppáhaldsmyndin hennar.
Myndir mánaðarins
Ég elskaði Hunger Games- og
Mortal Instruments-sögurnar en
uppáhaldsbókin mín er A Tree
Grows in Brooklyn eftir Betty
Smith. Það er dásamleg saga.
- Amandla Stenberg.
Fólk talar um að innflytjendur
komi vegna þess að þeir séu að
flýja styrjaldir eða ofsóknir og svo
er talað um efnahagsflóttafólk.
Flestir gleyma því að aðalástæðan
fyrir því að fólk flytur til annarra
landa er til að börnin þeirra geti
átt betra líf en þau hafa átt sjálf.
Þannig var það í mínu tilfelli.
- Omar Sy, en foreldrar hans eru frá
Máritaníu og Senegal.
Ísland er einn af nokkrum stöðum
í heiminum sem láta mann
finnast maður vera á annarri
plánetu vegna þess að landslagið
þar er svo einstakt. Stundum fær
maður á tilfinninguna að maður
sé á tunglinu. Stærðarhlutföllin
eru líka einhvern veginn öðruvísi,
fjöllin tilkomumeiri og himinninn
tvöfaldur að stærð. Og vötnin
eru með lit sem ég hef hvergi
séð annars staðar. Svo eru góðar
líkur á að maður rekist á fimm
manns sama daginn sem heita
í höfuðið á Þór. Að vera að leika
í mynd á landinu þar sem hann
var í hávegum hafður og á meðal
þjóðar sem skrifaði og varðveitti
sögurnar var einstök tilfinning.
- Tom Hiddleston, um reynslu sína
af Íslandi þegar hann var hér að
leika í Thor: The Dark World.
Ég held að ég hefði getað orðið
áhugaverðari leikari ef ég hefði
verið formlegri en ég var og
undirbúið mig betur undir hlut-
verkin. Ef ég sé eitthvað sem ég
lék í fyrir 10 árum eða meira þá
langar mig stundum til að geta
farið til baka og gert það betur.
- Sam Elliott, um það hvort hann
sjái eftir einhverju varðandi ferilinn.
Mig langaði alltaf að leikstýra. Ég
var búinn að lofa mér því að láta
þann draum rætast um fertugt.
- Bradley Cooper, sem varð 44 ára
5. janúar.
Þetta er svona hænu-og-egg
leikur. Til að fá einhvern til að
fjármagna þá þarftu að vera
kominn með þekkta leikara en til
að fá þekkta leikara þá verður þú
að vera kominn með fjármagn.
- Richard E. Grant, um framleiðslu
kvikmynda í Hollywood.
Ég fékk hlutverk í grískum harm-
leik strax eftir útskrift. Síðan hef
ég aldrei verið verkefnalaus. Ég
þekki því ekki þetta ströggl sem
margir leikarar upplifa.
- Hayley Atwell.