Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 26

Fighting with My Family Þú verður að hafa neistann! Sönn saga glímudrottningarinnar Sarayu-Jade Bevis sem und- ir sviðsnafninu Britani Knight (síðar Paige) hóf atvinnuferil í glímu þrettán ára gömul og vann sig upp í bandarísku WWE- atvinnumannaglímuna þar sem hún varð aðeins 21 árs að aldri yngsta konan til að vinna svokallaða Divas-glímukeppni. Þessi merka saga sem hér er sögð á gamansaman hátt sækir efnið að stórum hluta í samnefnda heimildarmynd frá árinu 2012 um bresku Bevis-fjölskylduna, en allir fimm fjölskyldumeðlimirnir voru atvinnumenn í fjölbragðaglímu. Myndin er framleidd af Dwayne Johnson sem leikur einnig sjálfan sig í henni en hann þekkir fjöl- skylduna vel og hvatti þau til dáða á sínum tíma enda sjálfur einn þekktasti fjölbragðaglímumeistari sögunnar eins og mjög margir vita. Til liðs við sig fékk hann grínistann Stephen Merchant sem skrifaði handritið og leikstýrði myndinni, en Stephen er einna þekktastur sem samstarfsmaður Rickys Gervais og bæði skrifaði, lék í og leikstýrði Office- og Extras-þáttunum kostulegu. Við förum ekki nánar út í söguþráð myndarinnar hér en hún skartar heilum her kunnra leikara og gefa stiklurnar úr henni góða von um að hér sé á ferðinni mynd sem gæti orðið einn óvæntasti smellur ársins ... Fighting with My Family Sannsögulegt / Gamanmynd Aldurstakmark óákveðið fyrir prentun 108 mín Sarayu-Jade Bevis, eða Paige eins og hún er nefnd í myndinni, er leikin af hinni 23 ára gömlu Florence Pugh sem vakti m.a. mikla athygli fyrir frábæran leik í myndinni Lady Macbeth árið 2016 og sem Charlie í bresku sjónvarpsþáttaröðinni The Little Drummer Girl. Aðalhlutverk: Florence Pugh, Jack Lowden, Dwayne Johnson, Nick Frost, Vince Vaughn, Lena Headey, Stephen Merchant, Kim Matula og Hannah Rae Leikstjórn: Stephen Merchant Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 22. febrúar Punktar .................................................... Hluti myndarinnar er tekinn upp í og við borgina Norwich í Englandi en Bevis-fjölskyldan er einmitt þaðan. Aðrir hlutar eru teknir upp á söguslóðum í Bandaríkjunum, þar á meðal í Staples Center í Los Angeles á raunverulegum bardagakvöldum. l Veistu svarið? Faðir Paige í myndinni, Ricky Knight, er leikinn af Nick Frost sem eftir að hafa leikið í nokkrum sjón- varpsmyndum og þáttum sló í gegn í sinni fyrstu bíómynd árið 2004 þar sem hann lék á móti Simon Pegg í leikstjórn Edwards Wright. Í hvaða mynd? Stephen Merchant leikstjóri og handritshöfundur Fighting with My Fam- ily og Dwayne Johnson sem framleiðir. Þeir leika líka báðir í myndinni. Shaun of the Dead. 26 Myndir mánaðarins