Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 16

Vice Sagan sem aldrei var sögð Kvikmyndin Vice fjallar á stórskemmtilegan og gamansaman hátt um Dick Cheney, fyrrverandi varaforseta Bandaríkjanna í stjórn Georges W. Bush á árunum 2001 til 2009, en Cheney notaði áhrif sín og völd til að fara sínu fram og er margt af því sem hann gerði verulega umdeilt og verður það um ókomin ár. Leikstjóri myndarinnar og handritshöfundur er Adam McKay sem sendi síðast frá sér hina margföldu verðlaunamynd The Big Short en hún er að margra mati ein besta mynd sem gerð hefur verið um bankahrunið 2008. Hér leikur hann sér að því að draga upp á yfirborðið ýmislegt sem Dick Cheney kom til leiðar á sínum stjórn- málaferli og um leið kynnumst við sögu hans, allt frá því að hann kom fyrst fram á sjónarsvið stjórnmálanna á áttunda áratug síðustu aldar, en Cheney hafði víða komið við áður en hann varð varaforseti. Christian Bale og Amy Adams leika Dick og Lynne Cheney en fyrir leik sinn hlaut Christian Golden Globe-verðlaunin og Amy hlaut til- nefningu til þeirra. Bæði eru þau síðan tilnefnd til BAFTA- og Óskars- verðlauna og myndin sjálf sem besta mynd ársins í báðum tilfellum. Vice Sannsögulegt / Gamanmynd 132 mín Aðalhlutverk: Christian Bale, Amy Adams, Steve Carell, Sam Rock- well, Tyler Perry, Eddie Marsan, LisaGay Hamilton, Jesse Plemons og Lily Rabe Leikstjórn: Adam McKay Bíó: Laugarásbíó, Smárabíó og Borgarbíó Akureyri Frumsýnd 1. febrúar Punktar .................................................... HHHHH - Los Angeles Times HHHHH - Hollywood Reporter HHHH 1/2 - N. Y. Post HHHH 1/2 - USA Today HHHH - E. W. HHHH - Rolling Stone HHHH - Empire HHHH - Guardian Fyrir utan að vera talin ein besta og skemmtilegasta mynd ársins 2018 af mörgum gagnrýnendum hefur Vice verið hlaðin verðlaun- um og viðurkenningum, þ. á m. sex Golden Globe-tilnefningum þar sem Christian Bale hlaut verðlaunin fyrir besta leik í aðalhlut- verki, sex BAFTA-tilnefningum og átta Óskarsverðlaunatilnefning- um, en bæði BAFTA- og Óskarsverðlaunin verða afhent í febrúar. l Sam Rockwell í hlutverki George W. Bush, forseta Bandaríkjanna. Veistu svarið? Þetta er í fjórða sinn sem Christian Bale er tilnefndur til Óskarsverðlauna en hann var einnig tilnefndur fyrir myndirnar The Big Short, American Hustle og The Fighter. En fyrir hverja þeirra hlaut hann síðan Óskarsverðlaunin? Steve Carell leikur varnarmálaráðherrann Donald Rumsfeld. The Fighter. 16 Myndir mánaðarins