Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 12
Bíófréttir – Væntanlegt
Tryllir ársins?
Menn bíða spenntir
Já, það er óhætt að segja að menn bíði spenntir eftir næstu mynd
Quentins Tarantino, Once Upon a Time in Hollywood, sem væntan-
leg er í byrjun ágúst, enda spá margir því að þar sé á ferðinni mynd
ársins 2019. Lítið hefur enn spurst út um söguþráðinn annað en
að sagan sé um tvo menn, leikara og staðgengil hans, sem eru að
reyna að meika það í Hollywood. Þeir eru leiknir af Brad Pitt og
Leonardo DiCaprio en vitað er að myndin snýst að einhverju leyti
um morðið á Sharon Tate sem var myrt 9. ágúst 1969. Hér fyrir ofan
má sjá þá Brad og Leonardo í hlutverkum sínum og fyrir neðan
er Margot Robbie í hlutverki Sharon Tate. Neðsta myndin er svo
af meistaranum sjálfum og kvikmyndatökumanni myndarinnar,
þrefalda Óskarsverðlaunahafanum Robert Richardson.
James Gunn hefur ekki setið auðum höndum
frá því að tilkynnt var að hann myndi ekki
gera fleiri Guardians of the Galaxy-myndir
og snýr bráðlega aftur sem söguhöfundur
og framleiðandi myndarinnar Brightburn,
sem margir spá að eigi eftir að gera það gott,
en hún verður frumsýnd í maí. Hér er um
trylli að ræða sem í mjög stuttu máli fjallar
um bændahjón sem taka að sér ungan
dreng sem virðist hafa komið til jarðar með
einhvers konar geimskipi. Í fyrstu virðist
strákurinn vera í lagi en annað á heldur betur eftir að koma á
daginn. Handritshöfundar eru bræður James, þeir Mark og Brian
Gunn, og leikstjóri er David Yarovesky sem gerði m.a. myndina The
Hive. Stiklan er nýkomin á netið og er hreint út sagt mögnuð.
John Wick, hvað ertu búinn að gera?
Eins og allir sem fylgjast með væntanleg-
um myndum vita er von á þriðju John
Wick-myndinni í bíó 17. maí og er spennan
mikil hjá þeim sem kunnu að meta fyrri
myndirnar tvær. Sú spenna minnkaði ekki
þann 17. janúar þegar fyrsta stiklan úr
myndinni var frumsýnd um leið og hún
fékk endanlegt heiti, John Wick: Chapter 3 -
Parabellum. Ljóst er að sagan byrjar þar sem
síðasta mynd endaði og John er á fullu að
undirbúa sig fyrir það sem koma skal þegar
allir leigumorðingjar heimsins munu gera
það að forgangsverkefni að drepa hann. Um leið kemur í ljós að
hann verður ekki einn í baráttunni í þetta sinn því gömul vinkona
hans, Sofia sem Halle Berry leikur, ákveður að taka slaginn með
sínum manni. Þetta verður hasar eins og hasar á að vera!
12
Myndir mánaðarins