Myndir mánaðarins MM Febrúar 2019 Bíóhluti | Page 10
Bíófréttir – Væntanlegt
10
Villeneuve gerir Dune Ekkert gefið upp
Fransk-kanadíski leikstjórinn Denis Villeneuve sem á m.a. að baki
myndirnar Prisoners, Sicario, Arrival og Blade Runner 2049, er nú
kominn á fullt við gerð sinnar næstu myndar en hún er byggð á
einhverri þekktustu og söluhæstu vísindaskáldsögu allra tíma,
Dune, eftir bandaríska rithöfundinn Frank Herbert. Þar fylgir Denis
í spor Davids Lynch sem gerði sögufræga mynd eftir þessari bók
árið 1984 en hún hefur einnig verið notuð sem efniviður í tölvuleiki
og sjónvarpsþætti. Ekki er alveg búið að ráða allan leikhópinn
en þeir leikarar sem þegar eru komnir um borð og munu fara
með stærstu hlutverkin eru Timothée Chalamet sem leika mun
Paul Atreides, Rebecca Ferguson sem leikur Lady Jessicu, Dave
Bautista sem leikur Glossu „Beast“ Rabban, Charlotte Rampling
sem leikur Mother Mohiam og Stellan Skarsgård sem leika mun
Baron Harkonnen. Frumsýningardagur er óákveðinn en sennilega
er stefnt að frumsýningu seint á næsta ári. Eins og lesendur Mynda mánaðarins hafa eflaust tekið eftir
hvetjum við þá oft til að kynna sér stiklur myndanna sem við
erum að fjalla um hér í blaðinu til að glöggva sig nánar á hvers
konar myndir er um að ræða og út á hvað þær ganga. Við vitum
hins vegar að margir hafa varann á þegar stiklur úr myndum eru
annars vegar því það kemur auðvitað fyrir að þær segja of mikið
um söguna og geta því skemmt fyrir upplifuninni þegar að því
kemur að horfa á myndina í heild. Fyrir þetta hafa aðstandendur
Avenger: Endgame ákveðið að taka og hafa gefið það út að allt
kynningarefni um myndina muni einungis innihalda upplýsingar
um efni og atriði sem gerast á fyrstu tuttugu mínútunum. Þannig
á að vera tryggt að enginn geti séð fyrir hvað gerist í sögunni eftir
það þannig að restin af myndinni, allar 129 mínúturnar (ef hún
verður jafn löng og Infinity War sem var 149 mínútur), muni koma
öllum í opna skjöldu. Endgame verður frumsýnd í lok apríl.
Tom Holland leikur Nathan Drake Og talandi um Tom Holland ...
Nafn Nathans Drake hringir áreiðanlega engum bjöllum í huga
annarra en þeirra sem spila tölvuleiki og þá sérstaklega þeirra sem
spila PlayStation-leiki. Nathan þessi er nefnilega aðalpersónan í
leikjaseríu sem ber samheitið Uncharted og hefur notið mikilla
vinsælda allt frá því að fyrsti leikurinn, Uncharted: Drake’s Fortune,
kom út á PlayStation 3 árið 2007. Segja má að allar götur síðan
hafi hugmyndin að gerð myndar um Nathan verið uppi á borðum
en það var þó ekki fyrr en núna nýlega sem staðfest var að hún
væri komin í gang undir stjórn leikstjórans
Dans Trachtenberg sem gerði myndina 10
Cloverfield Lane. Einnig hefur verið tilkynnt
að köngulóarmaðurinn Tom Holland hafi
verið ráðinn í hlutverk Nathans, en sá er mikill
ævintýramaður sem ferðast um allan heim
í leit að fjársjóðum og fornum munum sem
seljast fyrir góðan pening. Ekkert liggur fyrir
um aðra leikara eða frumsýningardag. ... þá verðum við auðvitað að minnast á að fyrsta langa stiklan
úr næstu Spider-Man-mynd var frumsýnd fyrir skömmu og er að
sjálfsögðu stórskemmtileg eins og búast mátti við. Í myndinni, sem
ber undirtitilinn Far From Home og verður frumsýnd í júlí, förum
við með Peter Parker og nokkrum skólafélögum hans í ferðalag
til Evrópu þar sem ætlunin er að heimsækja sögufræga staði. Að
sjálfsögðu leysist allt upp í hasar og læti þegar Nick Fury birtist
á svæðinu og vill að Peter hjálpi til við að ráða niðurlögum hins
öfluga Quentins Beck, öðru nafni Mysterios, sem Jake Gyllenhaal
leikur. Nick er eins og áður leikinn af Samuel L. Jackson en með
önnur stór hlutverk fara m.a. þau Zendaya, Cobie Smulders, Marisa
Tomei, Jon Favreau, Michael Keaton, Angourie Rice og Jacob
Batalon sem leikur besta vin Peters, Ned. Leikstjóri er sá sami og
í myndinni Homecoming, Jon Watts, og handritshöfundarnir eru
einnig þeir sömu, Erik Sommers og Chris McKenna. Ekki er loku fyrir
það skotið að einhverjar fleiri gestapersónur úr Marvel-heiminum
komi við sögu en við þorum ekki að giska á hverjar þær verða.
Myndir mánaðarins