Myndir mánaðarins MM Desember 2019 Bíóhluti | Page 26
Spæjarar í dulargervi
Njósnarinn sem breyttist í dúfu
Lans Sterling er heimsins færasti njósnari og sérsveitarmaður
og ef ekki væri fyrir hann þá væri einhver glæpamaðurinn
fyrir löngu búinn að útrýma mannkyninu. Það má því segja
að stórhætta skapist þegar nánasti samstarfsmaður Lans,
ungur tækninörd að nafni Valtýr, breytir honum óvart í dúfu.
Spæjarar í dulargervi (Spies in Disguise) er nýjasta mynd Blue Sky-
teiknimyndafyrirtækisins sem á m.a. að baki hinar bráðskemmti-
legu Ísaldar-myndir, Río-myndirnar, Horton Hears a Who! og nú
síðast hina afar vinsælu og ljúfu mynd um góða nautið Ferdinand.
Eftir að Valtýr breytir Lans í dúfu (sem var reyndar dálítið Lans
sjálfum að kenna) verða góð ráð dýr því stórglæpamaðurinn illi og
voldugi, Kiljan, er um það bil að fara að láta til skarar skríða gegn
mannkyninu. Ljóst er að til að stöðva hann dugar ekki dúfa sem er
ekki einu sinni búin að læra að fljúga – nema eitthvað meira komi til!
Punktar ....................................................
l Myndin verður sýnd með íslenskri og enskri talsetningu og í
þeirri síðarnefndu eru það þau Will Smith, Tom Holland, Karen
Gillan, Ben Mendelsohn, Rashida Jones, Reba McEntire, Masi Oka
og Rachel Brosnahan sem ljá helstu persónunum raddir sínar.
Spæjarar í dulargervi
Teiknimynd / Fjölskylduskemmtun
102
mín
Íslensk talsetning: Árni Beinteinn Árnason, Orri Huginn Ágústsson,
Þórunn Erna Clausen, Oddur Júlíusson, Hildur Magnúsdóttir,
Ragnheiður Steindórsdóttir, Guðmundur Ingi Þorvaldsson og Breki
Elís Sunnevuson Þýðing: Stefán Már Magnússon Leikstjórn: Rósa
Guðný Þórsdóttir Bíó: Smárabíó, Laugarásbíó, Sambíóin Álfabakka og
Egilshöll og Borgarbíó Akureyri
Frumsýnd 26. desember
26
Myndir mánaðarins