Myndir mánaðarins MM Desember 2018 DVD Vod og tölvuleikir | Page 8
Gullkorn
Þegar ég var að hefja minn feril þá
voru langflestir ungu leikararnir sem
náðu árangri úr verkamannastétt
eins og ég. Í dag koma nánast allir
ungir leikarar sem ná árangri úr efri
millistéttum. Svona hafa nú tímarnir
breyst á 35 árum.
- Julie Walters.
Að verða einhver Hollywood-stjarna
hefur aldrei verið mitt markmið en
einhvern veginn hafa verkefnin sem
ég hef tekið að mér leitt til frægðar.
Hún var hins vegar aldrei markmið
heldur var ég bara að vinna mína
vinnu og reyna að gera mitt besta.
- Benedict Cumberbatch.
Ef ég sé skó sem mér finnst flottir og
langar að eiga þá kaupi ég þá, jafnvel
þótt þeir séu ekki til í minni stærð.
- Keira Knightley, sem safnar skóm.
Ég var einu sinni í sama herbergi og
Paul McCartney og hugsaði með
mér að ef ég labbaði að honum og
sparkaði í klofið á honum þá yrði ég
heimsfrægur á svipstundu.
- Seth Rogen, um skrítinn þankagang.
8
Myndir mánaðarins
Hetjurnar mínar voru Bruce Lee
og Jackie Chan. Þeir þurftu engar
tæknibrellur eða klippingar til að
sýnast góðir bardagamenn. Þeir voru
góðir bardagamenn og ég vildi verða
jafngóður og þeir.
- Jason Statham, um innblásturinn.
Ef það er eitthvað sem þú hefur ekki
gert en hefur alltaf langað að gera
þá skaltu ekki bíða lengur. Farðu og
gerðu það sem þú vilt gera.
- Julianne Moore.
Fólk vill fá að vita hvort ég hafi hitt
Robert (Pattinson). Það er meira en
pirrandi. Ég meina ... hvað kemur það
vinnu minni við? Hvað kemur það
fólki við? Ég vil ekki að mitt einkalíf sé
annarra manna áhugamál.
- Kristen Stewart, um viðtöl.
Það er enginn vandi að vera laus
við slúðurdálkana. Maður lifir bara
eðlilegu lífi, sleppir því að vera með
þeim sem eru í sviðsljósinu, fer ekki á
umdeilda staði, gerir ekki neitt af sér,
hittir vinina og mætir í vinnuna.
- Amanda Seyfried.
Ef maður hegðar sér eins og maður
viti hvað maður er að gera þá getur
maður í raun gert allt.
- Sharon Stone. Ég lít á mig sem ljóðskáld þótt ég
hafi aldrei beint samið ljóð. Allt sem
ég geri er hins vegar ljóðrænt, hvort
sem það er að leika, elda, hugsa um
garðinn, tala við annað fólk ... ég
meina, lífið er ljóð.
- Tom Berenger.
Eftir því sem árin líða hef ég minni og
minni áhyggjur af framtíðinni. Ég er
alveg viss um að hvað sem gerist þá
muni ég alltaf koma standandi niður.
- Joel Edgerton, um framtíðarplönin. Ég held að flestir lendi á krossgötum
í lífi sínu oftar en einu sinni. Ég hef að
minnsta kosti verið á mörgum.
- Jennifer Lopez.
Einu skiptin sem ég hljóma eins og
ég sé gáfaður er þegar einhver annar
hefur skrifað það sem ég segi.
- Christian Bale.
Það gaf mér mikið að ég eyddi
öllum sumrum á Írlandi þegar ég
var að alast upp og vetrunum í
Bandaríkjunum. Þetta voru algjörar
andstæður, annars vegar borgarlíf
og steypa og hins vegar náttúran í
öllu sínu veldi með fjöllum, vötnum,
dýralífi og grasi. Ég gat varla beðið
veturinn af mér til að komast aftur til
Ardmore á sumrin. Fólkið þar sagði
mig hins vegar heppna að búa í
Bandaríkjunum.
- Olivia Wilde.
Það jafnast ekkert á við þá tilfinningu
að fylgjast með 500 manns horfa á
100 mínútum á verk sem tók mann
þrjú ár að vinna og uppgötva hvernig
manni hefur tekist til.
- Michael Mann.
Ég meina, þeir standa fyrir utan húsið
hjá manni allan tímann og elta mann
hvert sem maður fer. Mér er alveg
sama hvað sagt er, þetta er ekki í lagi.
- Chris Hemsworth, um ljósmyndara.
Alltaf þegar ég leik í mynd þá held ég
að hún eigi eftir að slá í gegn.
- Billy Crudup.